Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögðu hald á um 800 plöntur á þremur stöðum

Read Full Article →

Sex voru handteknir og grunaðir um aðild að þremur umfangsmiklum kannabisræktunum sem lögregla upprætti nýlega. Hún hefur lagt hald á samtals tæplega 800 plöntur á þremur stöðum. Nýlega var greint frá því að 200 plantna kannabisræktun hefði verið stöðvuð í Reykholti í Bláskógabyggð. Auk hennar réðst lögregla í húsleit í sumarbústað í Kjós í lok júní þar sem virðist hafa verið ræktun um nokkrun tíma. Þá uppgötvaðist ræktun einnig á Reykjanesinu. Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu. „Það var ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum og lagt hald á kannabisplöntur á þremur, tæplega 800 í heildina.“ Lögregla hefur einnig lagt hald á tilbúin fíkniefni. Til rannsóknar er hvort þetta tengist skipulagðri brotastarfsemi. Vísir greindi frá því að lögreglan og sérsveitin hefðu ráðist í handtökur á Vesturlandsvegi undir Esjunni síðdegis 25. júní. Grétar segir að þar hafi tveir verið handteknir í tengslum við kannabisræktunina sem stöðvuð var í Kjós. Þau sem voru handtekin eru öll af erlendum uppruna, bæði karlar og konur. Enginn er í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Share this article