Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flugvöllurinn bæði í stríði og friði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.7.2026 | 14:15 Flugvöllurinn bæði í stríði og friði Minnst verður við hátíðlega athöfn á Reykjavíkurflugvelli næstkomandi mánudag, 6. júlí, að 80 ár eru liðin frá því Bretar afhentu Íslendingum völlinn formlega til eignar og yfirráða. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Reykjavíkurflugvöllur Borgin gerði ekkert í nær þrjú og hálft ár Vara við óábyrgum fjárfestingum Vill þétta byggð í Vatnsmýri „Ekki einhver vísbending um eitt eða neitt“ Titringur í meirihlutanum: „Stórfurðuleg afgreiðsla“ » Fleiri tengdar fréttir Minnst verður við hátíðlega athöfn á Reykjavíkurflugvelli næstkomandi mánudag, 6. júlí, að 80 ár eru liðin frá því Bretar afhentu Íslendingum völlinn formlega til eignar og yfirráða. Þetta var rétt eftir lok síðari heimsstyrjaldar og upphaflegu hlutverki vallarins lokið; það er að þjóna flugvélum breska hersins og bandamanna þeirra. Efnt verður af þessu tilefni til samkomu á tímamótadegi þar sem fulltrúar ráðuneyta, breska sendiráðsins og Reykjavíkurborgar flytja stutt ávörp. Mikilvægur staður í samgöngukerfi landsins „Óskastaðan er auðvitað sú að senn verði hafist handa við byggingu nýrrar flugstöðvar. Það hús hér á flugvellinum yrði eitt af andlitum Reykjavíkurflugvallar, þar sem allt að 350 þúsund farþegar fara um á ári. Núverandi flugstöð, byggð í stríðinu, er barn síns tíma. Hvað verður gert ræðst af vilja stjórnvalda og hvaða fjármunum þau vilja veita til framkvæmda,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf. Ekki verður véfengt að Reykjavíkurflugvöllur sé einn af mikilvægustu stöðunum í samgöngukerfi landsins. Þar er umferð allan daginn; áætlunarflug Icelandair og fleiri, sjúkraflug og starf Landhelgisgæslunnar. Einnig þyrluútgerð einkafyrirtækja, svo sem útsýnisferðir. Vélar sem verið er að ferja yfir Atlantshafið hafa sömuleiðis oft viðkomu á vellinum. Annars er stór hluti umferðarinnar einkaflug áhugamanna, sem aðstöðu hafa á vestursvæði vallarins. mbl.is/Sigurður Bogi Nýjar myndavélar og breyta umferðarstýringu Umferð á flugvellinum er mjög að dragast saman. Hreyfingar þar – það er flugtök og lendingar – voru á ári um 130.000 nærri aldamótunum en eru nú um 40.000 á ári. Samdrátturinn er nærri 70%. Skiptar skoðanir hafa alltaf verið um tilvist vallarins, sem nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur boðar nú að skuli verða óhreyfður og á skipulagi til ársins 2040. Lítið hefur verið um nýframkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli í seinni tíð. Stækkun á skýli Landhelgisgæslunnar út undir Fossvogi er eina nýja byggingin sem reist hefur verið á svæðinu síðustu hálfu öldina, utan byggingar flugstjórnarmiðstöðvar. Sú er nærri hóteli og flugturni svæðisins. „Áherslan næstu misserin er á viðhaldsverkefni bæði hvað varðar búnað og flughlöð,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir. „Stærsta verkefnið næstu vikurnar er uppsetning á myndavélamastri þar sem við erum að breyta umferðarstýringu. Þá munu flugumferðarstjórar fylgjast með á skjáum allri umferð í loftrýminu og á jörðu niðri. Þetta er þróun sem við höfum fylgst mjög vel með í löndunum í kringum okkur. Annað verkefni, talsvert smærra í sniðum, er svo endurnýjun á söguskiltum í Öskjuhlíðinni. Á þeim slóðum var breski herinn með margvíslega starfsemi í seinna stríði og sjást rústir og minjar þeirra mannvirkja enn. Sögu okkar vegna er mikilvægt að halda fróðleik þessum til haga.“ Fyrsta þota Íslands, Gullfaxi, kom til landsins sumarið 1967. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Reykjavíkurflugvöllur Borgin gerði ekkert í nær þrjú og hálft ár Vara við óábyrgum fjárfestingum Vill þétta byggð í Vatnsmýri „Ekki einhver vísbending um eitt eða neitt“ Titringur í meirihlutanum: „Stórfurðuleg afgreiðsla“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bretland - Ísland, staðan er 30:26 Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna Flugvöllurinn bæði í stríði og friði Ósáttur með byggingu risahótels Fannst látinn á vinsælum ferðamannastað Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Swift og Kelce gengu í það heilaga Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Markaðurinn furðufljótur að jafna sig Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Bretland - Ísland, staðan er 30:26 Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna Flugvöllurinn bæði í stríði og friði Ósáttur með byggingu risahótels Fannst látinn á vinsælum ferðamannastað Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maður lést á Fimmvörðuhálsi Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum

Share this article