Innlent | mbl | 1.3.2026 | 18:10 „Sannaði gildi sitt enn á ný“ Fjöldi farþegavéla í Icelandair í millilandaflugi þurftu að lenda á Reykjavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Reykjavíkurflugvöllur gegndi lykilhlutverki sem varaflugvöllur þegar veðurskilyrði og færð á Keflavíkurflugvelli komu í veg fyrir lendingar 15 véla Icelandair þar á fimmtudag. Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, segir atvikið sýna mikilvægi varaflugvalla fyrir öryggi flugsamgangna, en vélunum var dreift á varaflugvelli á Akureyri og Egilsstöðum auk Reykjavíkur. „Reykjavíkurflugvöllur er einn af okkar mikilvægu varavöllum og getur tekið við yfir 20 vélum í lendingu og á stæði,“ segir Arnar Már. Akureyrarflugvöllur getur tekið við 13 vélum og Egilsstaðaflugvöllur fjórum. Frétt af mbl.is Síðustu vélarnar í loftið í nótt Háð ströngum útreikningum Á Reykjavíkurflugvelli lentu bæði Boeing 757 og 737 MAX 8-vélar en þær síðarnefndu eru meðal stærri farþegaflugvéla í flota Icelandair. Er rétt að 737 MAX 8-vélarnar geti með herkjum lent á Reykjavíkurflugvelli vegna þess hve stutt flugbrautin er? „Við getum notað brautina í Reykjavík en þegar aðstæður eru eins og á fimmtudaginn og bremsuskilyrði fara niður þá lengist bæði lendingar- og flugtaksvegalengd. Við þurfum auðvitað að taka tillit til þess.“ Arnar segir lendingu slíkra véla háða lendingarskilyrðum, ströngum útreikningum og hæfni varaflugvallar, bæði fyrir brottför og í flugi fyrir lendingu. „Ef það er utan marka er enginn flugmaður sem reynir við þá lendingu.“ Frétt af mbl.is Farþegar þurfa að bíða í vélunum Varaflugvellir mikilvægir Hann segir atvikið undirstrika mikilvægi Reykjavíkurflugvallar sem varaflugvallar þegar ófyrirséðar aðstæður koma upp í millilandaflugi. „Reykjavíkurflugvöllur er góður og nauðsynlegur varaflugvöllur sem við getum notað eins og sýndi sig og sannaði á fimmtudaginn, sem áður fyrr. Varaflugvellir eru mikilvægt öryggistæki og Reykjavíkurflugvöllur sannaði gildi sitt enn á ný.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gleði á Ljóninu í tilefni bjórdagsins Bandaríkjaher hefur sökkt níu írönskum hersskipum „Sannaði gildi sitt enn á ný“ Trump hyggst ræða við íranska leiðtoga Ungur Víkingur lánaður til Keflavíkur Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Merki um að Khamenei sé látinn „Þetta er grafalvarleg staða“ 21 milljarðs gjaldþrot Play Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Vara við stórhríð á morgun Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Gleði á Ljóninu í tilefni bjórdagsins Bandaríkjaher hefur sökkt níu írönskum hersskipum „Sannaði gildi sitt enn á ný“ Trump hyggst ræða við íranska leiðtoga Ungur Víkingur lánaður til Keflavíkur Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Beint: Ísraelsher heldur árásum á Íran áfram Ísrael gerir loftárásir á Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Vara við stórhríð á morgun Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“