Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stefna á 5 milljarða sjóð

Read Full Article →

AxUM Verðbréf hf. hagnaðist um 11 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 150 milljóna króna hagnað árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 36 milljónum króna á árinu og jukust um 10 milljónir milli ára. Eiríkur S. Jóhannsson og Hjörvar Maronsson tóku við félaginu af Fossum fjárfestingarbanka í byrjun síðasta árs og sögðust á þeim tíma vera að kaupa tómt félag með rekstrarleyfi. AxUM Verðbréf hf. reka í dag þrjá sjóði sem markaðssettir eru til íslenskra fag- og stofnanafjárfesta. Félagið starfrækir m.a. framtakssjóðinn Landvætti slhf. fyrir hönd Kaldbaks og KEA en umræddur sjóður fjárfestir í innlendum nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum með sérstaka áherslu á fyrirtæki sem eru með starfsemi á landsbyggðinni. Upphafsstærð sjóðsins var 1 milljarður króna en stefnt er á að áskriftarloforð um mitt ár verði um 5 milljarðar króna segir í skýrslu stjórnar. Framkvæmdastjóri félagsins er Hreinn Þór Hauksson Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 30. júní.

Share this article