Flautað var til leiks í fertugasta sinn á N1-móti drengja í knattspyrnu á Akureyri á miðvikudaginn. Ríflega 1600 keppendur spila fótbolta frá morgni til kvölds en þeim fylgja einnig töluverður fjöldi aðstandenda og Akureyrarbær iðar af lífi. Þó að fótboltinn sé í forgangi hjá flestum er margt annað sem fylgir. Fyrir utan stórtónleika, bíó- og sundferðir þá breytist íþróttahús KA í stórt mötuneyti þar sem keppendur borða morgun-, hádegis- og kvöldverð alla keppnisdagana. Það eru alls um 18.000 matarskammtar. Norðanmegin við Glerá fer fram Pollamót fyrir fullorðna í dag og á morgun. Þar er gleðin við völd og gamalkunnir taktar sjást víða, þó svo að sumir séu komnir af léttasta skeiði. Keppt er í bæði karla og kvennaflokki á Pollamótinu þar sem yngstu keppendurnir eru 20 ára en þeir elstu töluvert eldri. Akureyri iðar af lífi þessa dagana þar sem árleg knattspyrnuveisla bæjarins stendur sem hæst. Þúsundir sækja Akureyinga heim og gleðin ræður ríkjum innan vallar sem utan.