Innlent | mbl | 4.8.2026 | 12:18 Myndskeið: Þúsundir hoppa með FM95Blö á Akureyri Setja bókamerki Þó að gestir fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri hafi beðið í ofvæni eftir laugardagskvöldinu og stórtónleikum FM95Blö má segja að stærsta kvöldið hafi verið sunnudagskvöldið þegar árlegir Sparitónleikar hátíðarinnar fóru fram. Davíð Rúnar Gunnarsson, skipuleggjandi hjá Viðburðastofu Norðurlands, segir í samtali við mbl.is að um 12 þúsund manns hafi verið á Akureyrarvelli á laugardagskvöld. Það var alvöru „stadium gigg“-stemning hjá FM95Blö á Akureyrarvelli um helgina. Ljósmynd/Hilmar Friðjónsson 20 þúsund manns „Á sunnudagskvöldinu voru miklu fleiri. Við erum að giska á tölu í kringum 20 þúsund manns.“ Davíð hefur lýst óánægju sinni með veðurspámenn í viðtölum við fjölmiðla en hann segir blíðskaparveður hafa verið á Akureyri alla helgina, þvert á svartsýnar veðurspár í aðdraganda verslunarmannahelgar. „Hingað komu fjölmargir söluvagnar og þeir pöntuðu vörur á mánudegi og þriðjudegi þegar menn voru að gefa út þessar hrikalegu spár. Þessir sölubásar voru uppseldir á sunnudegi áður en stóru tónleikarnir hófust. Ímyndaðu þér tjónið sem fólk verður fyrir. Það voru þrír sölubásar lokaðir á sparitónleikunum,“ segir Davíð. Kynnar á sparitónleikunum voru Akureyringurinn Svenni Þór og söngdívan og eiginkona hans, Regína Ósk. Fram komu Aron Can, Bríet, Dynjandi, Herra Hnetusmjör, Jói Pé og Króli, Laddi & Hljómsveit mannanna, Kristmundur Axel, Páll Óskar og leynigestir voru stemningsmennirnir í FM95Blö sem ærðu viðstadda með grípandi smellum sínum og hressilegri framkomu. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þeir allir mömmustrákar. Ljósmynd/Hilmar Friðjónsson Hver er sá besti? Ljósmynd/Hilmar Friðjónsson „Þeir mættu bara allir á svið sko. Auddi, Steindi, Gillz og svo kom Ólafur Ragnar, sjálfur Pétur Jóhann, en hann var svona leynileynigestur helgarinnar,“ segir Davíð en rapparinn Saint Pete steig sömuleiðis á stokk með strákunum sem og rokkstjarnan Magni. Eins og sjá má á myndskeiðinu í spilaranum að ofan náðu þeir félagar í FM95Blö upp magnaðri stemningu á Akureyrarvelli. Mikil stemning myndaðist þegar Jói P og Króli tróðu upp fyrir framan Hótel Kea. Ljósmynd/Hilmar Friðjónsson Haukur Henriksen er einn af mönnum á bak við tjöldin. Ljósmynd/Hilmar Friðjónsson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Þúsundir hoppa með FM95Blö á Akureyri Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Guðmundur selur 350 milljóna hús Blikar hefja Evrópuævintýrið í Kasakstan Lánaður í Breiðholtið Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Handteknir með skotvopn á Akureyri Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Athugasemdir við málsmeðferð Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Þúsundir hoppa með FM95Blö á Akureyri Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Guðmundur selur 350 milljóna hús Blikar hefja Evrópuævintýrið í Kasakstan Lánaður í Breiðholtið Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Miðar að rjúka út og metsunnudagur í færi Fjórtán ábendingar borist um minka á ferð Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn