Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þjónustustörfum fækkar þrátt fyrir HM

Read Full Article →

Störfum innan veitinga- og hótelgeirans í Bandaríkjunum fækkaði um 61 þúsund í nýliðnum júní samkvæmt tölum frá bandarísku vinnumálastofnuninni sem birtar voru í gær. Heildarfjölgun starfa í Bandaríkjunum nam 57.000 en það var undir væntingum. Á vef BBC segir að fjölmargir í Bandaríkjunum hafi búist við því að heimsmeistaramótið í knattspyrnu myndi fjölga störfum í veitinga- og hótelgeiranum en svo varð ekki. Greinendur hjá Goldman Sachs höfðu til að mynda spáð því að mótið myndi skila um 40 þúsund nýjum störfum í júní. Samkvæmt fyrri tölum í maí voru krár og veitingastaðir þegar farnir að fjölga starfsfólki til að undirbúa sig fyrir HM. Sjá einnig Fánasala rýkur upp um 130% vegna HM Þrátt fyrir fregnir af stuðningsmönnum sem tæmdu dælurnar á bandarískum börum reyndist þróunin hins vegar þveröfug í júní. James Knightley, aðalhagfræðingur ING í Bandaríkjunum, segir samdráttinn koma sér verulega á óvart, sérstaklega í ljósi þess að mótið standi enn yfir og krár og skemmtistaðir séu þéttsetnir.

Share this article