Útflutningur á bandarískum vörum og þjónustu jókst um 2,6% í apríl og nam 327,1 milljarði dala. Þetta kemur fram á vef New York Times en þar segir að lokun Hormússundsins hafi ýtt undir útflutning á bandarískri olíu. Á sama tíma jókst innflutningur einnig í apríl um 2% milli mánaða og nam 383 milljörðum dala en Bandaríkin fluttu inn mikið af raftækjum fyrir starfsemi tengda gagnaverum. Aukningin á bæði útflutningi og innflutningi gerði það að verkum að vöruviðskiptahalli Bandaríkjanna minnkaði lítillega, eða um 1,2%, og fór niður í 55,9 milljarða dala. Ríkisstjórn Donalds Trumps hefur lagt áherslu á að draga úr þeim halla og lítur á hann sem merki um veikleika í bandarískum iðnaði. Sjá einnig Undirbúa nýja tolla á 59 ríki og ESB Tollarnir hafa þó einnig dregið úr innflutningi á sumum vörum til Bandaríkjanna. Mikil útgjöld á tæknivörum eins og örgjörvum, tölvum og fjarskiptabúnaði fyrir gagnaver hafa þó falið þau áhrif en innflutningur á slíkum tæknivarningi jókst um 39,3%.