Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Viðmiðunarverð ýsu 39% af fiskmarkaðsverði

Read Full Article →

Viðmiðunarverð slægðs þorsks var 65% af fiskmarkaðsverði 23. júní síðastliðinn og 39% af óslægðri og slægðri ýsu. Í kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna 1995 var kveðið á um að útgerðarmaður og áhöfn skuli gera sín á milli samninga um fiskverð þegar útgerð selur afla til eigin vinnslu, þ.e. í viðskiptum skyldra aðila. Jafnframt eru ákvæði um að sé afli seldur milli óskyldra aðila geti áhöfn krafist að gerður verði samningur um uppgjörsverð fyrir þann afla. Loks var í kjarasamningunum 1995 ákvæði um að sett skyldi á fót sérstök úrskurðarnefnd sem fjalla skuli um þau tilvik þegar ekki næst samkomulag um fiskverð milli áhafnar og útgerðar. Verðlagsstofa skiptaverðs tók svo til starfa 1. júní 1998 sem og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Hún hefur því starfað nú í tæpa þrjá áratugi. Hlutverk verðlagsstofu er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á honum. Verðlagsstofan á að afla ítarlegra gagna um fiskverð og vinna sundurliðuð yfirlit um það þar sem miðað er við einstök landsvæði, tiltekna viðskiptahætti og stærðar- og gæðaflokka úr upplýsingunum. Verðlagsstofan á síðan að birta upplýsingar um fiskverð reglulega. Það gerði hún síðast þegar viðmiðunarverð sem gildir frá 3. júní 2026 var birt á heimasíðunni. Nýtt viðmiðunarverð sýnir 1,2% hækkun á slægðum 4 kg þorsk, 1,9% lækkun á óslægðum 5 kg þorsk, 3,4% lækkun á 2 kg slægðri ýsu og 0,9% lækkun á 2,5 kg óslægðri ýsu. Slægður 3,5 kg ufsi hækkaði um 6,2% og óslægður 3,5 kg ufsi um það sama. Engin föst regla Engin föst regla er um hvert hátt hlutfall af fiskmarkaðsverði viðmiðunarverð skal vera. Það fer líka eftir tegund og markaðsaðstæðum. Algeng viðmiðunarhlutföll í þorski og ýsu er oft um 70-85% af meðalmarkaðsverði og oft 60-80% af uppsjávartegundum. Viðmiðunarverð er notað til að tryggja lágmarksverð til fiskimanna og er þá um leið grundvöllur fyrir útreikning á tryggingabótum og gjaldtöku, eins og veiðigjalda. Það sem getur ráðið viðmiðunarhlutföllum eru sveiflur á alþjóðlegum fiskmarkaði, gæði og vinnslustig afla og árstíðabundnar breytingar á framboði. Í súluritinu má sjá fiskmarkaðsverð og viðmiðunarverð Verðlagsstofu skiptaverðs fyrir þrjár helstu nytjategundirnar í bolfiski, þ.e. þorski, ýsu og ufsa. Súluritið sýnir líka hlutfall viðmiðunarverðs af fiskmarkaðsverði eins og það var 23. júní síðastliðinn.

Share this article