Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fá að svara kalli markaðarins

Read Full Article →

Á verkefnalista nýs meirihluta er brugðist við ákalli uppbyggingaraðila um að markaðnum sé treyst fyrir að byggja húsnæði sem eftirspurn er eftir. Þá verða reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar felldar á brott og sveigjanleiki aukinn. Veittur verður 90% afsláttur af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara, íþyngjandi kvaðir á húsbyggjendur sem hækka húsnæðisverð felldar á brott og gerðir verða uppbyggingarsamningar við húsbyggjendur sem tryggja aukinn byggingarhraða, svo fátt eitt sé nefnt úr verkefnalistanum sem tengist húsnæðismálum. „Við viljum tryggja meira frelsi á húsnæðismarkaði og gera uppbyggingaraðilum kleift að byggja vöru sem eftirspurn er eftir,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Við höfum séð hvernig fyrri meirihlutar hafa þröngvað þessa aðila inn í verkefni sem seljast illa. Þar má t.d. nefna stórar og dýrar íbúðir á þéttingarreitum með sárafáum bílastæðum sem varla nokkur hefur efni eða áhuga á að kaupa. Við viljum vinna með uppbyggingaraðilum að því að þróa vörur á húsnæðismarkaði sem íbúar eru að kalla eftir. Hluti af því markmiði er að tryggja nægt framboð með því að skipuleggja nýtt land. Þar horfum við m.a. til uppbyggingar nýrra hverfa í Höllum í Úlfarsárdal og Keldnalandi. Ártúnshöfði er að byggjast upp og til framtíðar er stefnt að uppbyggingu á Geldinganesi, Kjalarnesi og Gufunesi. Þessi svæði eru ekki aðeins spennandi fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis heldur einnig húsnæðis undir atvinnustarfsemi.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article