Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.5.2026 | 21:20 Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum „Þetta er gert til þess að bregðast við því að við séum að tryggja þessi gæði, við höfum híbýli sem að séu þá með einhverja lágmarksbirtu,“ segir Ólafur. Samsett mynd/mbl.is/Anton Brink Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir Alvarleg staða á íbúðamarkaði Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni » Fleiri tengdar fréttir Innleiðingu og framkvæmd á sviði dagsljóss, raflýsingar, ljósmengunar og útsýnis í byggingum hefur verið ábótavant um nokkurt skeið. Þannig hefur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) sett saman leiðbeiningar um ljósvist fyrir skipulagsgerð annars vegar og í byggingarreglugerð hins vegar. Ákvæði um ljósvist tóku gildi 1. maí fyrir framkvæmdir sem byggja á deiliskipulagi sem samþykkt er eftir þann tíma. Frá og með 1. ágúst 2027 munu ákvæðin aftur á móti gilda um allar framkvæmdir sem sótt er um byggingarleyfi fyrir. „Rótin að breytingunni er sú að núna eru komnar inn reglur í byggingarreglugerð, þar sem er búið að setja fram mælanleg ákvæði um ljósvist, það er að segja birtu inni í íbúðum. Það er bæði birta, eða sólarljósið, og önnur lýsing, eins og raflýsing og annað slíkt,“ segir Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags- og umhverfismatssviðs hjá HMS, við mbl.is. „Þetta er gert til þess að bregðast við því að við séum að tryggja þessi gæði, við höfum híbýli sem eru þá með einhverja lágmarksbirtu.“ Getur verið áskorun í þéttingarreitum Breytingin þýðir að þegar leyfi fyrir nýbyggingu liggur fyrir þarf hönnuður að sýna fram á það í greinargerð sinni að hann hafi uppfyllt þessi skilyrði. Þannig eru sett lágmarksviðmið um það hvað sé ásættanlegt með tilliti til birtu í híbýli. „Það sem þetta þýðir líka, og þetta er í rauninni aðalkvöðin og í reglugerðinni er talað um þetta, að ef þú sérð ekki fram á að ná þessu með einhverjum hætti þá þarf einhverja sérstaka undanþágu til þess,“ segir Ólafur. Viðkomandi verði þá að gera grein fyrir því af hverju hann getur ekki uppfyllt lágmarksviðmiðin og sveitarfélögin taki svo afstöðu. „Í samhengi skipulagsins skiptir þetta svo miklu máli. Þú byrjar á því í aðalskipulagi að segja: Hérna ætlum við að vera með íbúðabyggð og við erum að sjá fyrir okkur þennan þéttleika. Þú vinnur það svo nánar í deiliskipulagi: Hér eru byggingarreitir, hér eru hæðir, hér eru skilyrði um fas eða glugga, alls konar hluti. Ef þetta er unnið vel þá ætti eftirleikurinn að vera auðveldur,“ útskýrir Ólafur enn fremur. Þetta geti verið ákveðin áskorun, sér í lagi í þéttingarreitum þar sem jafnan vill verða mikill skuggi, en það sé vel hægt að leysa með tilliti til hönnunar. Reglugerðin var kynnt í húsakynnum HMS í dag. mbl.is/Anton Brink Starfshópur var skipaður árið 2022 Það var árið 2022 sem fólk innan úr fagstéttinni fór að benda á þetta vandamál. Þá var starfshópur skipaður til að fjalla um tillögur Ljóstæknifélagsins um að innleidd verði heildstæð umfjöllun um ljósvist í byggingarreglugerð. Í ágúst árið 2022 kom fram í frétt á mbl.is að formaður félagsins fagnaði því að málið væri komið á dagskrá en teldi að búið væri að hunsa þær aðferðir sem til væru til að meta umhverfisaðstæður allt of lengi. Ólafur segir þennan starfshóp hafa unnið að því að reglugerð þessi yrði til. „Þetta er rót sem kemur frá fagstéttinni, að segja: Heyrðu, nú þurfum við aðeins að fara að skoða þessa þætti. Og það sama á við líka um þætti eins og hljóðvist,“ segir hann. Frétt af mbl.is „Þetta er svolítið búið að vera villta vestrið“ Frétt af mbl.is Byggja 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum „Eðlilegt í flókinni borgarþróun“ Inntur eftir áliti á því hvort ekki hefði verið þörf á reglum sem þessum fyrir um áratug, áður en reistar voru íbúablokkir á víð og dreif þar sem varla næst sólarljós inn um glugga, segir Ólafur að uppbygging hafi verið hröð, verið sé að feta fyrstu skrefin í að þétta byggðina og þá sé ekkert að gera nema horfa fram á við og læra af vegferðinni. Huga hafi orðið að mörgu öðru, svo sem aðgengi að útivistarsvæðum og bílastæðum. „Fyrir utan að það hafi bara verið hreinlega húsnæðisskortur, þannig að við höfum náttúrulega verið að vinna dálítið hratt í uppbyggingunni. En við horfum bara fram á veginn,“ segir hann. „Það er bara eðlilegt í flókinni borgarþróun, þetta er náttúrulega mjög stórt samfélagslegt verkefni að byggja svona mikið á stuttum tíma. Þannig að já, ef þessar kvaðir hefðu verið komnar fyrr þá hefði það krafist þess að við skoðuðum betur hver útfærslan væri.“ „Þetta er rót sem kemur frá fagstéttinni, að segja: Heyrðu, nú þurfum við aðeins að fara að skoða þessa þætti. Og það sama á við líka um þætti eins og hljóðvist,“ segir Ólafur. mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Segir þéttingarstefnuna komna í þrot Frétt af mbl.is Af hverju eru hagsmunir Reykvíkinga virtir að vettugi? Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir Alvarleg staða á íbúðamarkaði Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Tíu Þróttarar unnu á Hlíðarenda Fram vann Breiðablik í sjö marka leik Ómar hetja ÍA – ömurleg byrjun FH heldur áfram Uppbygging fjögurra verknámsskóla Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldri hjón unnu 336 milljónir Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Lét teikna hagkvæmari íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Myndband: Handtaka í Hveragerði Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Tíu Þróttarar unnu á Hlíðarenda Fram vann Breiðablik í sjö marka leik Ómar hetja ÍA – ömurleg byrjun FH heldur áfram Uppbygging fjögurra verknámsskóla Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Myndband: Handtaka í Hveragerði Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Loka

Share this article