Innlent | mbl | 1.7.2026 | 19:10 Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Valhúsaskóli eða Grunnskóli Seltjarnarness. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Búseta og bakgrunnur hafa áhrif „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu » Fleiri tengdar fréttir Sumarið 2019 sendi foreldrafélag Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi bæjaryfirvöldum erindi þar sem kvartað var harðlega undan námsmati skólans. Nú sjö árum síðar útskrifast um helmingur nemenda skólans með A í lokaeinkunn. Í erindi foreldrafélagsins kom fram að einkunnagjöfin hefði ekki gefið rétta mynd af getu nemenda. Afleiðingin, að sögn foreldra, væri sú að nemendur ættu erfiðara með að komast í þá framhaldsskóla sem þeir helst vildu en jafnaldrar þeirra úr öðrum skólum. Frétt af mbl.is Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Beðin afsökunar á tilfinningalegu tjóni Í kjölfarið var Erna Ingibjörg Pálsdóttir, skólastjóri Álftanesskóla, fengin til að vinna greinargerð um það hvernig staðið var að námsmati við skólann, sérstaklega m.t.t. mats- og hæfniviðmiða. Var greinargerðin svo tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness í nóvember 2019 þar sem foreldrar og nemendur voru beðnir afsökunar á því tilfinningalega tjóni og óþægindum sem einkunnirnar kynnu að hafa valdið og afleiðingum sem þær höfðu í för með sér. „Öll eigum við rétt á að njóta árangurs erfiðis okkar. Eftir tíu ára grunnskólagöngu er ekki boðlegt að börnum sé boðið upp á að uppgjör vinnunnar sé ekki rétt reiknað. Það blasir við að í Grunnskóla Seltjarnarness hefur verið alvarleg brotalöm á útskrift nemenda í lok síðasta skólaárs og jafnvel lengra aftur í tímann. Greinargerð sú sem lögð hefur verið fram til kynningar í skólanefnd er einfaldlega falleinkunn fyrir skólann,“ segir í fundargerð Seltjarnarnesbæjar frá 27. nóvember 2019. Þessi ummæli hleyptu illu blóði í kennara og stjórnendur Valhúsaskóla. Í bréfi til foreldra sagði að kennurum og stjórnendum þætti freklega að sér vegið og þeir treystu sér ekki til að taka á móti nemendum. Kennsla var svo felld niður í einn dag í kjölfarið. Frétt af mbl.is Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Nú fær um helmingur A Í dag er sagan þó allt önnur. Samkvæmt nýjum gögnum mennta- og barnamálaráðuneytisins útskrifuðust 56,7% nemenda skólans með A í stærðfræði árin 2023 og 2024. Árin 2025 og 2026 útskrifuðust 42,48% nemenda skólans með A úr stærðfræði. Þá sýna gögnin að árin 2023, 2024 og 2025 fékk ekki einn einasti nemandi skólans D í stærðfræði eða íslensku. Á síðustu fjórum árum hafa aðeins um 5% nemenda fengið C í lokaeinkunn í þessum greinum. Halldóra Snorradóttir, aðstoðarskólastjóri Valhúsaskóla, vildi ekki tjá sig um málið er mbl.is hafði samband við hana. Þá náðist ekki í Helgu Þórdísi Jónsdóttur skólastjóra. Frétt af mbl.is Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Búseta og bakgrunnur hafa áhrif „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Belgía – Senegal kl. 20, bein lýsing Orðinn leikmaður Chelsea Myndir: Ánægjulegt skref stigið í vernd Gróttu Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki búsettir hér á landi Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Fækkun beiðna áhyggjuefni Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Uppsagnir á Bifröst Andlát: Sr. Þórir Stephensen Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Féll fram af svölum og lést Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Belgía – Senegal kl. 20, bein lýsing Orðinn leikmaður Chelsea Myndir: Ánægjulegt skref stigið í vernd Gróttu Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki búsettir hér á landi Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Uppsagnir á Bifröst Andlát: Sr. Þórir Stephensen Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Féll fram af svölum og lést Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið