Innlent | mbl | 1.7.2026 | 11:08 | Uppfært 11:24 Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Um þriðjungur nemenda í Hagaskóla fékk A í stærðfræði og íslensku 2025 og 2026. Samsett mynd/Eggert/Hari Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin » Fleiri tengdar fréttir Annaðhvort sýna nemendur í Hagaskóla betri námsárangur en nemendur annarra skóla við lok 10. bekkjar eða námsmat skólans er annars konar en í öðrum skólum landsins. Þetta segir Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, í samtali við mbl.is um ný gögn frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sem sýna hve ósamræmd einkunnagjöf er á milli grunnskóla landsins. Frétt af mbl.is Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Nærri 33% nemenda með A Í tölum ráðuneytisins kemur meðal annars fram að 32,27% nemenda sem útskrifuðust úr Hagaskóla árin 2025 og 2026 fengu A í lokaeinkunn í stærðfræði samanborið við 12,43% landsmeðaltal. Þá útskrifuðust 27,95% nemenda skólans með A í íslensku á sama tímabili samanborið við 6,75% landsmeðaltal. „Þegar við höfðum samræmdar mælingar var námsárangur nemenda í Hagaskóla, og er væntanlega ennþá, töluvert fyrir ofan lands- og Reykjavíkurmeðaltal,“ segir Ómar. Frétt af mbl.is Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Hafa kallað eftir gögnunum Hann segist oft hafa kallað eftir þessum upplýsingum frá ráðuneytinu eftir að ákveðið var að hætta með samræmd próf í grunnskólum. „Í gegnum þennan áratug höfum við heyrt alls konar tröllasögur um að í þessum og hinum skólunum sé bara helmingur nemenda með þessa eða hina einkunnina og einkunnaverðbólga sé úti um allt nema í Hagaskóla,“ segir hann. „Ég hef alltaf sagt það í þessi tíu ár að það er augljóst, það er algjörlega augljóst að námsmat í grunnskólum er ekki samræmt. Það er nógu flókið verkefni fyrir okkur, sem erum stór skóli með marga kennara, að samræma námsmat innan skólans.“ Hann segir þau matsviðmið sem notuð eru til þess að meta nemendur við lok tíunda bekkjar vera afar opin til túlkunar. Frétt af mbl.is Nemendum með A stórfjölgar milli ára 0% nemenda með A í 26 skólum Í gögnum ráðuneytisins kemur einnig fram að 26 skólar á landsbyggðinni gáfu ekki einum einasta nemanda A í lokaeinkunn í stærðfræði árin 2025 og 2026. Ómar bendir á að þeir framhaldsskólar sem mest samkeppni er um séu á höfuðborgarsvæðinu og nefnir sem dæmi MR, Versló, Kvennó, MS, FG og MK. „Ég velti því fyrir mér hvort einkunnaþrýstingurinn svokallaði hafi verið mestur í grennd við þessa skóla. Það er í sjálfu sér alveg eðlilegt að nemendur í Hagaskóla sjái fyrir sér að sækja skóla sem eru hérna í grenndinni.“ Frétt af mbl.is Markleysið enn einn áfellisdómur Hafa „augljóslega“ minni tækifæri Hann segir nemendur á landsbyggðinni „augljóslega“ hafa minni tækifæri til að sækja um samkeppnisskólana. Hann segir nemendur á landsbyggðinni þó flesta sækja um framhaldsskóla í sínu sveitarfélagi þar sem inntaka nemenda er nærri 100%. „Það eru alveg nemendur utan af landi sem hafa áhuga á eða vilja eða sækja um og fara í skólana hérna á höfuðborgarsvæðinu, en það er miklu minna um það,“ segir Ómar. „En ég hef sagt það alveg frá upphafi að það er ekki jafnræði vegna þess að einkunnagjöfin er augljóslega ekki samræmd.“ Frétt af mbl.is Einkunnaverðbólga meiri á höfuðborgarsvæðinu Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Arsenal á eftir markverði Leeds Uppsagnir á Bifröst Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Thule gengur í gegnum breytingar Mistök gerð við kynfræðslu Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Watson vera elítuaktívista Fækkun beiðna áhyggjuefni Fimm verkefni fá 600 milljónir Mistök gerð við kynfræðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ekki búsettir hér á landi Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Andlát: Sr. Þórir Stephensen Atburðarásin eins og í bíómynd Álit kom ráðherra á óvart Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Arsenal á eftir markverði Leeds Uppsagnir á Bifröst Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Thule gengur í gegnum breytingar Mistök gerð við kynfræðslu Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Fimm verkefni fá 600 milljónir Mistök gerð við kynfræðslu Tengja kyrkingartak við óútskýrðan heilsubrest Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ekki búsettir hér á landi Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Andlát: Sr. Þórir Stephensen Atburðarásin eins og í bíómynd Álit kom ráðherra á óvart Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“