Innlent | mbl | 1.7.2026 | 15:54 Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Björn Brynjólfur segir nemendur þurfa að vita hvar þeir standa. mbl.is/Karítas Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar » Fleiri tengdar fréttir Búseta og bakgrunnur grunnskólanemenda á Íslandi eru farin að hafa áhrif á það hvort þeir komist inn í þá framhaldsskóla sem þeir vilja eða ekki. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, um ný gögn sem barna- og menntamálaráðuneytið birti í gær. Þau sýna mikinn mun á einkunnadreifingu milli grunnskóla. Hlutfall nemenda sem fá A í lokaeinkunn nær frá 0% upp í 56,7% eftir skólum. Kemur þar einnig fram að 28 skólar, sem eru allir staddir á landsbyggðinni nema tveir, gáfu ekki einum einasta nemanda A í lokaeinkunn í stærðfræði við útskrift úr grunnskóla á árunum 2025 og 2026. Frétt af mbl.is Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Þurfa að vita hvar þeir standa „Í nýju tölunum sést að sumir þeirra skóla sem gefa hæstar einkunnir eru í hverfum þar sem félagsleg og efnahagsleg staða foreldra er einna sterkust á landinu öllu. Börn úr þeim hverfum eiga því greiðari leið inn í eftirsótta framhaldsskóla en börn sem búa í öðrum hverfum eða landshlutum, þótt raunveruleg færni og námsárangur sé ekki endilega meiri,“ skrifar Björn. Þar að auki þurfi nemendur að vita hvar þeir standa námslega miðað við jafnaldra sína. Grunnskólar eigi að gefa nemendum, foreldrum og kennurum rétt mat á stöðu barnsins í námi. „Foreldrar þurfa að geta treyst því að einkunn segi eitthvað raunverulegt um það sem barn þeirra kann og þarf að bæta. Nemendur þurfa að vita hvar þeir standa. Og kennarar þurfa að geta brugðist við áður en vandi verður of mikill.“ Frétt af mbl.is „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Ósamanburðarhæfar lokaeinkunnir Hann segir að frá aflagningu samræmdra prófa árið 2009 hafi íslensk stjórnvöld byggt upp kerfi þar sem lokaeinkunnir grunnskóla eru ósamanburðarhæfar og sæta einkunnaverðbólgu. „Menntamálastofnun var meðvituð um hvort tveggja, en í stað þess að bregðast við reyndu stjórnvöld að fela vandann með því að skipta úr tölustöfum yfir í bókstafi. Bókstafirnir eru síðan lagðir til grundvallar inntöku í framhaldsskóla. Búseta og bakgrunnur hafa þannig veruleg áhrif á næstu skref barns í námi.“ Þetta sé ekki einungis ósanngjarnt gagnvart þeim sem ekki komist inn í framhaldsskóla þrátt fyrir fullnægjandi raunfærni. Engum sé greiði gerður með því að innritast í framhaldsskóla á grundvelli einkunna sem gefa ranga mynd af raunverulegri færni. Hann segir síðarnefnda hópinn hefja framhaldsnám á forsendum sem geta reynst veikari en lokaeinkunnir gáfu tilefni til að ætla. Framhaldsskólar fái þar að auki ekki skýra mynd af því hvar nemandinn standi. Auk þess gæti nemandinn þurft að takast á við kröfur sem hann ræður ekki við sem eykur líkur á brottfalli. Frétt af mbl.is Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Ósanngjarnt gagnvart öllum „Það er sérkennilegt að eitt ríkasta og menntaðasta samfélag heims skuli ekki hafa traustan, reglulegan og samanburðarhæfan innlendan mælikvarða á það hvað börn læra í skólanum,“ skrifar Björn. „Afleiðingin er sú sama og síðustu ár: umsækjendur um skólavist eru ekki metnir á sama grunni. Sumir komast inn vegna þess að þeir stóðu sig vel. Aðrir komast inn vegna þess að einkunnaverðbólga í þeirra skóla gaf þeim forskot. Og enn aðrir þurfa frá að hverfa þótt þeir hafi átt inngöngu skilið. Það er ósanngjarnt gagnvart öllum þessum nemendum.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Lágt hlutfall kennara með sérhæfingu Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gylfi Þór hyggst selja bústaðinn sem hann keypti 21 árs gamall Áfram Ísland kýs sjálfstæði af björtum hug í ágúst Trump bjartsýnn Lárus ráðinn aðstoðarþjálfari Grindavíkur Ákvörðun um Lúðvík tekin eftir sumarið Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Mistök gerð við kynfræðslu Fækkun beiðna áhyggjuefni „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Gylfi Þór hyggst selja bústaðinn sem hann keypti 21 árs gamall Áfram Ísland kýs sjálfstæði af björtum hug í ágúst Trump bjartsýnn Lárus ráðinn aðstoðarþjálfari Grindavíkur Ákvörðun um Lúðvík tekin eftir sumarið Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm verkefni fá 600 milljónir Mistök gerð við kynfræðslu Atburðarásin eins og í bíómynd Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið