Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Verbólga hjaðnar á evrusvæðinu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ver­bólga hjaðn­ar á evru­svæð­inu Þorgils Jónsson Verðbólga á evrusvæðinu hjaðnaði umfram væntingar í júní. Það er talið munu draga úr þrýstingi á Seðlabanka Evrópu um að hækka stýrivexti. Ársverðbólga á evrusvæðinu, sem telur 21 af 27 aðildarríkjum ESB, var 2,8% í júní og lækkaði niður úr 3,2% í maí. Samkvæmt frétt Reuters var búist við þriggja prósenta verðbólgu þannig að þessi niðurstaða kom þægilega á óvart, en hún er rakin til þess að matvæla- og orkuútgjöld drógust saman. EPA / SASCHA STEINBACH Fyrir 5 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Sjö­undi lands­liðs­þjálf­ar­inn sem hættir eftir HM Sebastián Beccacece er orðinn sjötti landsliðsþjálfarinn sem hefur sagt upp störfum eftir gengi hans liðs á HM í fótbolta. Afsögnin Beccacece kemur í kjölfar þess að Ekvador féll úr leik fyrir Mexíkó í 32-liða úrslitum HM í gærkvöld. Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Lætur nei­kvæðni barna ekki stoppa sig Barna- og menntamálaráðherra segir rangt að ekki hafi verið tekið tillit til tillaga ungmenna sem tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum. Fulltrúaar Ungheilla saka ráðherra um sýndarsamráð. Fyrir 54 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL KrakkaRÚV Hvað gerist ef allt blóðið fer úr lík­am­an­um? Ef fólk missir mikið blóð er hægt að gefa því annað blóð í æðarnar. „Þá er stungið í æðarnar og blóðið gefið. Þá kemur það í staðinn fyrir blóðið sem þú misstir,“ segir Ína Björg Hjálmarsdóttir, líffræðingur hjá Blóðbankanum. Fyrir 58 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Andlát Söngv­ari Vil­lage People látinn Victor Willis, söngvari og forsprakki poppsveitarinnar Village People er látinn, 74 ára að aldri. Sveitin skaust upp á stjörnuhimininn á áttunda áratugnum með lögum eins og YMCA og In the Navy. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Mexíkó-Ekv­ad­or Mexíkó er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Ekvador í 32-liða úrslitum mótsins. Hér má sjá allt það markverðasta úr leik liðanna. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dæmd fyrir mis­notk­un á deb­et­korti vist­manns hjúkr­un­ar­heim­il­is Kona var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu tæpra 1,2 milljóna króna auk vaxta fyrir að nota debetkort vistmanns hjúkrunarheimilis 48 sinnum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Séra Þórir Steph­en­sen er látinn Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í gær. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lést eftir fall af svölum hjúkr­un­ar­heim­il­is Öldruð kona lést eftir að hún féll fram af svölum hjúkrunarheimilis í Grafarvogi á sunnudag. Lögregla rannsakar andlátið sem slys. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Banda­ríkja­for­seti hagn­að­ist um rúman millj­arð doll­ara í fyrra Hagnað Bandaríkjaforseta í fyrra má að miklu leyti rekja til viðskipta með rafmyntir. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að aflétta ýmsum reglugerðum varðandi rafmyntaviðskipti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Suðlæg átt og rign­ing Hægfara lægð frá Grænlandshafi mjakast yfir landið með suðlægri átt og rigningu. Hiti að 17 stigum í dag. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Hvað gerir Kane í keppn­inni um gull­skó­inn? Þrír leikir eru í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta í dag. England mætir Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó sem er í fyrsta sinn komið upp úr riðlakeppni. Heimamenn í Bandaríkjunum leika við Bosníu og Hersegóvínu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Drukkn­an­ir vegna slysa á skemmti­bát­um ekki fleiri í tíu ár Brynja Dögg Friðriksdóttir Sandnes í Noregi. Myndin tengist fréttinni óbeint. Wikimedia commons / Alexey Topolyanskiy Alls hafa 17 Norðmenn drukknað í tengslum við siglingar á skemmtibátum á fyrsta helmingi þessa árs, samkvæmt norsku siglingamálastofnunni. Norska ríkisútvarpið segir að þetta sé mesti fjöldi sem drukknað hefur með þessum hætti yfir sama tímabil í 10 ár. Allir hinna látnu voru karlmenn og flestir yfir 40 ára. Ellefu þeirra voru ekki í björgunarvesti eða flotgalla. Flest slysin urðu í litlum opnum skemmtibátum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Fyrsti sigur Mex­í­kóa í út­slátt­ar­keppni á HM í 40 ár Mexíkó vann Ekvador 2-0 í Mexíkóborg í nótt. Fresta varð leiknum um klukkustund vegna eldinga. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Kat­arar reyna að miðla málum í Doha Samninganefndir Írana og Bandaríkjanna funda hvor í sínu lagi með milligöngu Katara í Doha í vikunni. Nokkur óvissa hefur verið síðustu daga um framhald viðræðna milli þjóðanna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Eldur kvikn­aði í bíl í bíla­kjall­ara Brynja Dögg Friðriksdóttir Dælubíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Eldur kviknaði í bíl í bílakjallara í Bryggjuhverfi í Grafarvogi í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu eftir klukkan eitt og einn dælubíll var sendur á vettvang. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að tveir dælubílar til viðbótar hafi verið sendir í kjölfarið til að ráða niðurlögum eldsins og tryggja að eldurinn breiddi ekki úr sér í aðra bíla. Engin hætta er talin á ferð og ekki þurfti ekki að rýma blokkina fyrir ofan bílakjallarann. Eldsupptök eru ókunn og ekki liggur fyrir hvort bíllinn sem kviknaði í er rafmagnsbíll eða ekki. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regla lýsir eftir Cezary Brynja Dögg Friðriksdóttir Cezary Kobiela. Lögreglan á Vesturlandi Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Cezary Kobiela, 15 ára dreng sem fór frá Borgarnesi í gær með strætó suður til Reykjavíkur eða Akraness. Í tilkynningu frá lögreglunni á Facebook kemur fram að Cezary er 178 á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og í dökkar buxur. Þau sem vita eitthvað um ferðir Cezarys eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðin um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112. 30. júní 2026 kl. 23:21INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Hornafjörður Þús­und­ir tonna af ís­lensk­um perlu­sandi flutt út árlega Íslenskur perlusandur verður sífellt vinsælli. Um tuttugu þúsund tonn af svörtum sandi frá Stokknesfjörum eru flutt út á hverju ári. 30. júní 2026 kl. 23:00ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Mbappé jafn­aði Messi og Frakk­ar fara í 16-liða Frakkland mætti Svíþjóð í 32-liða úrslitum HM í fótbolta í dag. Frakkar höfðu yfirhöndina og unnu 3-0 sigur. Kylian Mbappé skoraði sjötta markið sitt á mótinu og jafnaði markafjölda Messi. 30. júní 2026 kl. 22:50ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Þriggja ára dreng bjarg­að eftir sex daga í hús­rúst­um í Ven­esú­ela Þriggja ára gamall drengur fannst lifandi í húsrústum í höfuðborginni Caracas í dag eftir að hafa verið þar í sex daga. Tala látinna í Venesúela hækkar stöðugt og nálgast nú tvö þúsund. 30. júní 2026 kl. 22:09ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Óvænt vin­átta hunds og elgs Óvænt vinátta elgskálfs og varðhunds hefur þróast síðustu vikur á bæ í Ockelbo í Svíþjóð. Elgurinn Stína fæddist veikburða og var því tekin heim þar sem hún fékk mjólk úr pela. Þar var fyrir varðhundurinn Boss sem hefur tekið vel á móti elgnum. 30. júní 2026 kl. 21:54INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Togari varð afl­vana fyrir utan Siglu­fjörð Elín Hrönn Jónsdóttir Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað út á mesta forgangi á sjöunda tímanum í kvöld eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðarboð frá togaranum Ottó N. Þorlákssyni úr Vestmannaeyjum. Togarinn var þá staddur hættulega nálægt landi við Siglufjörð. Lega ofhitnaði í togaranum með þeim afleiðingum að mikill reykur myndaðist. Skipið var algerlega aflvana og rak það í átt að landi. Áhöfnin á Sigurvini brást skjótt við og hélt björgunarskipið úr höfn aðeins um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst. Skipin eru nú komin inn á Siglufjörð og vinnur áhöfn björgunarskipsins að því að koma togaranum örugglega að bryggju. Mynd af vettvangi. Landhelgisgæslan 30. júní 2026 kl. 21:30INNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Ein sviðs­mynd­in að draga Band­ero til hafnar Dómsmálaráðherra segir það ólíðandi að hingað til lands komi menn með yfirlýsingar sem ógni öryggi sjófarenda. Gripið verður til aðgerða ef þeir láta verkin tala. 30. júní 2026 kl. 20:39INNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Sjálf­virk­ar neyð­ar­hring­ing­ar til Neyð­ar­lín­unn­ar hafa þurrk­ast út Neyðarlínunni hafa aðeins borist fimm sjálfvirk símtöl frá ökutækjum í júní samanborið við 175 mánuðinn á undan. Slökkt var á 2G- og 3G-farsímakerfi landsins um mánaðamótin. 30. júní 2026 kl. 20:26INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kostn­að­ur við að geta ekki átt barn í heima­byggð hlaupi á hund­ruð­um þús­unda 24 konur á Austurlandi verða fyrir áhrifum af sumarlokun fæðingardeildarinnar í Neskaupstað. Par á Stöðvarfirði telur sinn kostnað hlaupa á hundruðum þúsunda. 30. júní 2026 kl. 19:53MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Elín er stað­ar­skáld Wind­Works í Norðri Alþjóðlega tónlistarhátíðin WindWorks í Norðri hefur tilkynnt að staðartónskáld hennar 2026 verði Elín Gunnlaugsdóttir, íbúi á Selfossi. 30. júní 2026 kl. 19:43ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Próf­raun fyrir Brassa: Nor­eg­ur eina liðið sem þeir hafa ekki unnið Norðmenn eru komnir í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-2 sigur á Fílabeinsströndinni. Þar bíða þeirra Brasilíumenn en Norðmenn eru eina þjóðin sem Brasilía hefur ekki unnið í kappleik - og það í fjórum tilraunum. 30. júní 2026 kl. 19:38ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Fíla­beins­strönd­in - Nor­eg­ur Noregur vann 1-2 sigur gegn Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Noregur vinnur leik í útsláttarkeppni HM. 30. júní 2026 kl. 19:23INNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Óttast slys og lokar fyrir að­gengi að Foss­laug og Reykja­fossi: „Ágang­ur­inn stjórn­laus“ Hættulegar aðstæður eru við Fosslaug og Reykjafoss í Skagafirði. Landeigandi segir óljóst hver beri ábyrgð ef slys verða. Hann telur sig tilneyddan að loka fyri

Share this article