Deila Reyndar ákvað einn þáttastjórnenda Silfursins, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, að „nesta“ áhorfendur fyrir sumarið með því að helga síðasta þáttinn viðtölum við ríkisstarfsmenn sem voru almennt á þeirri skoðun að það væri góð hugmynd að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu og hefði fullnaðaraðlögun að regluverki sambandsins. Sjáum til hvernig það nesti sem ríkismiðillinn ákvað að útbúa handa þjóðinni endist. *** En ríkismiðillinn reynir þó að klóra í bakkann. Þó svo að þjóðin sé fullnestuð fyrir sumarið af hálfu Ríkisútvarpsins hefur það ákveðið að halda úti hlaðvarpi sem er helgað umræðunni um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið eða ekki. Á þessum vettvangi hefur oft verið fjallað um tilraunir ríkismiðilsins til að láta að sér kveða á hlaðvarpsmarkaðnum, sem er sennilega sá sproti íslensks fjölmiðlamarkaðar sem er hvað frjósamastur um þessar mundir þrátt fyrir tilraunir furðustofnunarinnar Fjölmiðlanefndar til að uppræta hann. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift