Innlent | mbl | 30.6.2026 | 10:55 Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Ming Ting Mancel. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar » Fleiri tengdar fréttir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari fer fram á að Ming Ting Mancel verði dæmd í 16 ára fangelsi fyrir þau brot sem henni eru gerð að sök í ákæru héraðssaksóknara og henni verði gert að greiða allan sakarkostnað. Þetta kom fram við munnlegan málflutning Karls í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í Edition-málinu svokallaða. Ming er ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi vegna andláts dóttur sinnar, Catherine Mancel, sem hún er sögð hafa banað í samverknaði við eiginmann sinn, Emeric, á Reykjavík Edition-hótelinu í júní á síðasta ári. Ming er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns. Frétt af mbl.is Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ekkert nema dauðinn beið Catherine Karl segir engar sönnur hafa verið færðar fyrir því að Catherine hafi samþykkt að láta lífið með hnífstungu þetta kvöld. Hann segir einhverjar vísbendingar benda til þess að Catherine hafi á einhverjum tímapunkti verið samþykk því að fara ásamt foreldrum sínum. „Ákærða er hér ein til frásagnar um að samþykki hafi legið fyrir og í raun er framburður hennar á þann veg að Catherine samþykkti ekki að fara á þessa leið, með þessari verknaðaraðferð,“ segir Karl í réttarsal. Frétt af mbl.is Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Ming hefur í tvígang greint frá því að Catherine hafi ekki viljað fara með þeim hætti sem hún gerði. Hún hafi sett upp greinilegan óánægjusvip þegar faðir hennar dró fram hnífinn. Hann bendir á að tvö vitni hafi greint frá því að Ming hafi ekki viljað skilja dóttur sína eina eftir á lífi. Þá vitnar hann í krufningsskýrslu réttarlæknis sem bendir til þess að til átaka hafi komið. Áverka mátti sjá á handleggjum, fótleggjum, enni, hálsi og höku Catherine. „Ákærða tók þátt í því að dánarstund Catherine var flýtt, ásetningur var kaldur og grimmur og hún gerði ekkert til að koma í veg fyrir ótímabært andlát Catherine. Það var ekkert nema dauðinn sem beið Cartherine og það vissi ákærða Ming,“ segir Karl. Frétt af mbl.is Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Hefði getað kallað á hjálp Hann bendir á að samkvæmt framburði Ming sé ekkert sem bendi til þess að hún hafi verið þvinguð eða henni skipað að framkvæma verknaðinn. Enn frekar bendir hann á að Ming hefði getað kallað á hjálp eftir að Catherine hafi verið stungin í fyrra skiptið. „Í stað þess að koma í veg fyrir það ákvað hún að gefa stúlkunni áfengi og svefnlyf en ákærða keypti lyfin með eiginmanni sínum fyrir ferðina. Hvers vegna ákváðu þau að gefa henni áfengi og svefnlyf? Það var gert svo þau gætu fullklárað það verk sem þau voru byrjuð á, að svipta Catherine lífi.“ Frétt af mbl.is Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Ming hafði sjálf samband við neyðaraðila að morgni 14. júní 2025 eftir að hafa hlotið stungusár á brjóstkassa. Hún játaði á vettvangi að hafa banað eiginmanni sínum og dóttur og kvaðst sjálf hafa ætlað að svipta sig lífi en ekki getað það. Síðar breytti hún framburði sínum og neitar nú sök. Samkvæmt framburði Ming stakk Emeric Catherine fyrst inni á baðherbergi og síðan aftur eftir að Ming leiddi hana að rúminu. Við aðalmeðferð málsins hefur komið fram að fjölskyldan hafi ákveðið að ferðast til Íslands, skoða landið og svipta sig lífi hér á landi. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Segir sjálfsagt að skoða málið Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Forræðisdeilur kveikjan að skotárásinni Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngurnar verið betri í sumar Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda