Innlent | mbl | 12.6.2026 | 20:55 Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Ming Ting Mancel í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar » Fleiri tengdar fréttir Starfsfólk á Edition-hótelinu í Reykjavík mætti fyrir dóm í dag og lýsti þar skelfilegum aðstæðum þegar það kom inn í herbergi þar sem lík feðginanna Emerics og Catherine Mancel fundust síðasta sumar. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa banað dóttur sinni, Catherine, í samverknaði við eiginmann sinn, Emeric, sem einnig fannst látinn á hótelherberginu þann 14. júní í fyrra. Aðalmeðferð málsins hófst í dag. Frétt af mbl.is „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Mikið blóð inni í herberginu Hótelstjóri Edition-hótelsins, starfsmaður hótelsins og öryggisvörður báru vitni fyrir dómi, hvert í sínu lagi, og lýstu atburðarásinni frá sínu sjónarhorni. Fram kom að símtal hefði borist móttöku hótelsins frá herbergi fjölskyldunnar á fjórðu hæð þar sem kona óskaði eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls án þess að gefa frekari skýringar. Hótelstjórinn lét þá kalla til öryggisvörð, hafði samband við Neyðarlínuna og fór að herberginu ásamt starfsmanni hótelsins. Þar hafi konan komið til dyra, særð og ringluð. Inni í herberginu hafi allt verið á tjá og tundri og mikið blóð. Frétt af mbl.is Íhuguðu að kasta sér fram af brú „Ég drap þau“ Í framburði starfsmannsins kom fram að hann hefði farið að sækja hrein handklæði þegar í ljós kom að engin slík væru eftir á baðherberginu. Þegar hann kom til baka hafi hann spurt hvað hefði gerst og konan þá svarað: „Ég drap þau.“ Í framburði öryggisvarðarins kom fram að hann hefði séð lík Emerics, eiginmanns Ming, á gólfi herbergisins. Stuttu síðar hafi Ming sagt honum að annað lík væri á rúminu. Fyrir dómi í dag sagði Ming að hún hefði sagt starfsfólki hótelsins að hún hefði drepið eiginmann sinn og dóttur til að kalla fram viðbrögð þeirra þar sem hún taldi að þau skildu sig ekki, en sjálf talar Ming litla ensku og hafði með sér dómtúlk fyrir dómi í dag. Hún sagði ummælin ekki hafa verið játningu heldur hefði hún verið að reyna að fá starfsfólkið til að skilja sig. Frétt af mbl.is Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Virtist ringluð og í áfalli Í framburði öryggisvarðarins kom einnig fram að konan hefði sagt sér að hún hefði reynt að svipta sig lífi en ekki haft til þess styrk. Aðspurður sagði hann hana hafa virst ringlaða og í áfalli. Aðalmeðferð málsins mun halda áfram á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku þar sem fleiri vitni munu mæta fyrir dóm. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kanada - Bosnía, staðan er 1:1 Martin drjúgur í fyrsta úrslitaleiknum Ólýsanleg stemning myndast á torginu Verðlaun úr minningarsjóðinum veitt í fyrsta skipti Jökull rekinn frá Stjörnunni Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íhuguðu að kasta sér fram af brú Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Sex flugferðum aflýst í dag Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Kanada - Bosnía, staðan er 1:1 Martin drjúgur í fyrsta úrslitaleiknum Ólýsanleg stemning myndast á torginu Verðlaun úr minningarsjóðinum veitt í fyrsta skipti Jökull rekinn frá Stjörnunni Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Hagræðingarhópur kynntur Álverðið hefur rokið upp „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Sex flugferðum aflýst í dag Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna