Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Það var bara allt á floti“

  • What: A hot water pipe burst at Varmahlíðarskóli school in Skagafirði, Iceland, causing significant water damage.
  • Impact: The school building suffered damage across three floors, affecting staff offices and other areas.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.2.2026 | 14:36 „Það var bara allt á floti“ Skrifstofa starfsmanna. Ljósmynd/Aðsend Talsverðar skemmdir urðu í húsnæði Varmahlíðarskóla í Skagafirði eftir að heitavatnslögn gaf sig aðfaranótt þriðjudags. Feykir greindi fyrstur frá. Kristvina Gísladóttir, aðstoðarskólastjóri Varmarhlíðaskóla, segir í samtali við mbl.is að allt hafi verið á floti þegar starfsfólk mætti í skólann snemma á þriðjudagsmorgni. Hún segir að heitavatnsrör sem tengist inn á loftræstikerfið hafi gefið sig sem varð til þess að það fór að leka vatn um bygginguna um nóttina. „Vatnið lak niður frá loftinu niður um allar þrjár hæðir byggingarinnar. Mesta vatnið var á miðhæðinni og vatn var um allt vinnurými starfsmanna, á skrifstofu skólastjóra og aðstöðu ritara. Það var bara allt á floti í þessu rými,“ segir hún. Unnið að því að dæla upp vatni. Ljósmynd/Aðsend Kristvina segir að við hliðina á rýminu sé tónlistarskólinn og segir hún að svo virðist sem að hann hafi sloppið. „Tjónið er talsvert en það er verið að meta það. Það komu menn frá fyrirtæki á Akureyri strax eftir hádegi á þriðjudaginn sem eru búnir að henda frá allri steinull sem var mjög blaut og þá hafa þeir sagað í veggi og loft og eru með hitablásara í gangi til að þurrka upp vatnið,“ segir hún. Hrósar starfsfólkinu Kristvina hrósar starfsfólki skólans fyrir skjót og góð viðbrögð sem hafi bjargað því sem hægt var að bjarga og undirbúið að nemendur mæti til baka í breyttar aðstæður. Hún segir lán í óláni að vatnslekinn hafi átti sér stað á þessum tíma þar sem vetrarfrí er í skólanum. „Nemendur fóru aðeins fyrr í vetrarfrí. Skólahaldi var aflýst á þriðjudaginn og í gær, í dag, á morgun og mánudag er vetrarfrí,“ segir hún. Til stendur að hefja skólastarf að nýju á þriðjudaginn en að sögn Kristvinu verður staðan tekin á mánudag hvað það varðar. „Loftið hefur ekkert verið sérstaklega heilsusamlegt síðustu daga enda er húsnæðið 50 ára gamalt. Við verðum bara að sjá til hvaða rými verður hægt að nota.“ Kristvina hrósar starfsfólki skólans fyrir skjót og góð viðbrögð sem hafi bjargað því sem hægt var að bjarga. Ljósmynd/Aðsend Tjónið er talsvert en það er verið að meta það. Ljósmynd/Aðsend Forysta Íslands umtöluð Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu „Ég hef heyrt sögur af stórum karlmönnum í fósturstellingunni eftir þessa súpu“ „Það var bara allt á floti“ 36 gjaldfrjálsir tímar í leikskólum Ölfuss Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Beint: Andrew handtekinn Tvöföld veikindi hjá því opinbera Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Þorsteinn Pétur sýknaður Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður „Maður heldur að svona gerist ekki“ Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Forysta Íslands umtöluð Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu „Ég hef heyrt sögur af stórum karlmönnum í fósturstellingunni eftir þessa súpu“ „Það var bara allt á floti“ 36 gjaldfrjálsir tímar í leikskólum Ölfuss Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Piparúða beitt gegn ungum dreng Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Þorsteinn Pétur sýknaður Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður „Maður heldur að svona gerist ekki“ Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article