Innlent | mbl | 29.6.2026 | 13:07 Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Starfsfólki Laugalækjaskóla er mjög létt að farið verði í viðgerðirnar í sumar. mbl.is/Karítas Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Skólastjóri Laugalækjaskóla segir það mikinn létti að ráðist verði í leka- og mygluviðgerðir á skrifstofugangi skólans í sumar en í vor leit allt út fyrir að ekki myndi verða af framkvæmdunum. Í vor sendi Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjaskóla, frá sér fréttaskeyti þar sem fram kom að starfsfólki skólans væri „illa brugðið“ vegna þess að á síðustu stundu hefði komið í ljós að ekki hefði tekist að fjármagna fyrirhugaðar leka- og mygluviðgerðir á skrifstofugangi skólans. Í samtali við mbl.is segir Jón Páll að fréttirnar hafi komið starfsfólki skólans að óvörum. Þau hafi ekkert skynjað annað en að það væri búið að fjármagna framkvæmdirnar. „Þegar við ætluðum að fara að tæma skrifstofurnar var okkur sagt að ekki hefði fengist fjármagn í þetta,“ segir hann. Verktakinn hafi meira að segja verið búinn að útvega mannskap í verkið. Þurftu virkilega á þessu að halda Nýlega sendi Jón Páll þó frá sér annað fréttaskeyti og í þetta sinn var tilefnið gleðilegra. Þá tilkynnti hann þær gleðifréttir að framkvæmdirnar á skrifstofuganginum gætu sannarlega hafist í sumar. Í bréfinu sagði hann heilsu starfsfólks almennt ekki vera til opinberrar umfjöllunar en leyfði sér að segja að starfsfólk skólans hefði „virkilega þurft á þessu að halda“. Hann segir það gríðarlegan létti að farið verði í framkvæmdirnar í sumar. Í bréfi sínu þakkaði hann meðal annars nýrri borgarstjórn og foreldrum barna við skólann fyrir stuðninginn, viðbrögðin og að vekja athygli á þeirri óvæntu stöðu sem upp kom. Foreldrar hæstánægðir Katrín Atladóttir, foreldri við Laugalækjaskóla, segir það hafa verið ákveðið áfall þegar tilkynnt var í vor um að ekki hefði tekist að fjármagna framkvæmdirnar. Lýsir hún óánægju yfir því að málið hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir kosningar en þakkar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg fyrir að „ganga hreint til verks og hugsa um íbúana í borginni“. Að lokum segir hún foreldra við skólann vera „heldur betur“ ánægða með að farið verði í framkvæmdirnar í skólanum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Chelsea sendir frá sér harðorða yfirlýsingu Börn styrktarforeldra heil á húfi Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Þorskkvóti í Barentshafi aukinn um 10% Landsliðsmaður á leið í uppeldisfélagið? Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugeldar í Safamýri um miðnætti Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Bindur vonir við virkjun Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Chelsea sendir frá sér harðorða yfirlýsingu Börn styrktarforeldra heil á húfi Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Þorskkvóti í Barentshafi aukinn um 10% Landsliðsmaður á leið í uppeldisfélagið? Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skuldar þjóðinni skýringar Vætusamt veður fram undan víðast hvar Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Bindur vonir við virkjun Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Framkvæmd sem margborgaði sig 16 ára ökumaður kærður Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita