Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sex drepnir í skotárás í Þýskalandi

Read Full Article →

Sex eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárás í þýska bænum Stade í norðurhluta Þýskalands. Grunaður árásarmaður og önnur kona voru handtekin á flótta. Þá hefur þriðji maður verið handtekinn vegna málsins. Talsmaður lögreglu segir að ekki sé vitað hvað bjó að baki árásunum. Árásin var gerð miðsvæðis í bænum á götu sem ber heitið Dankersstraße. Þýska blaðið Bild segir að árásin hafi verið gerð í nágrenni við þjónustumiðstöð fyrir ungt fólk. Fimm manns, fjórar konur og einn karlmaður, dóu á staðnum. Sá sjötti lést af sárum sínum á spítala. Stade er um 50 þúsund manna bær í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Hamborg. Fréttin hefur verið uppfærð .

Share this article