Fimm eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárás í þýska bænum Stade í norðurhluta Þýskalands. Grunaður árásarmaður og annar maður eru í haldi lögreglu. Talsmaður lögreglu segir að ekki sé vitað hvað bjó að baki árásunum. Á samfélagsmiðlinum X biður lögregla fólk að halda sig fjarri. Stade er um 50 þúsund manna bær í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Hamborg. Árásin var gerð miðsvæðis í bænum á götu sem ber heitið Dankersstraße. Þýska blaðið Bild segir að árásin hafi verið gerð í nágrenni við ungmennahús. Ekki kemur fram nákvæmlega hvers konar starfsemi er þar á ferð. Fréttin hefur verið uppfærð .