Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Borga hvorki auðlindaskatt né hvalrekaskatt

Read Full Article →

Hrafnarnir hafa undarleg ­áhugamál. Eitt þeirra er að fylgjast með dagbók forsætisráðherra sem er aðgengileg á vef Stjórnarráðsins. Þeir tóku eftir því að framan af síðasta ári fundaði Kristrún Frostadóttir nánast einungis með sínum eigin embættismönnum, verkalýðshreyfingunni og erlendum gestum Einn fundur skar sig þó frá hinum. Hann var með Stuðmanninum Jakobi Frímanni Magnússyni og Jökli Júlíussyni. Vafalaust hefur fundarefnið verið stór­tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo sem fóru fram á Þingvöllum liðna helgi. Tónleikarnir voru vel heppnaðir og sóttu um tuttugu ­þúsund manns þá. Ódýrustu miðarnir á tónleikana voru á um 24 þúsund krónur og þeir dýrustu seldust á ríflega sjötíu þúsund krónur. Ljóst er að myljandi hagnaður hefur verið af gigginu. Hrafnarnir undra sig þó á því, svona sérstaklega vegna aðkomu Kristrúnar að málinu, að stjórnarliðar hafi ekki krafist sérstaks auðlindagjalds vegna afnota af okkar dýrmætustu sameiginlegu auðlind, Þingvöllum, og enginn hefur talað um að taka hvalrekaskatt af hagnaðinum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist í blaðinu sem kom út 24. júlí 2026.

Share this article