Það segir sitt um traust þjálfara hvaða leikmenn sitja á bekknum þegar leikurinn er í járnum. Í kosningabaráttu Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar hefur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra verið sett í öndvegi ásamt Jónasi Má Torfasyni oddvita í Kópavogi, á meðan Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri virðist komin á bekkinn þegar mest á reynir Hrafnarnir taka eftir því að borgarstjórinn er nú stödd í Lviv í Úkraínu, þar sem hún dvelur fram á sunnudag til að taka þátt í ráðstefnu um öldrunarmál, Dignified Longevity: Creating Space for Care. Þar flytur hún erindið Strategy of Dignity: The Future of Long-Term Care in the European Context. Hrafnarnir lesa stöðuna þannig að Kristrún sé að þétta miðjuna og gefa Pétri Marteinssyni, djúpum miðjumanni, meira frelsi til að útskýra hvernig tíminn hjá Hammarby leiddi hann að lokum að Olof Palme og sannri jafnaðarmennsku. Hrafnarnir sakna þó að heyra hvort dvölin hjá Stoke hafi vakið áhuga hans á Harold Wilson — en það er önnur saga. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 6. maí 2025.