Verslunarsamstæðan Fagkaup hagnaðist um 869 milljónir króna á síðasta ári, en til samanburðar hagnaðist samstæðan um 1,4 milljarða árið áður. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 29,2 milljörðum króna á síðasta ári og hækkuðu um 3,6 milljarða milli ára eða um 14%. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 3,5 milljörðum króna og hækkaði um 709 milljónir á milli ára. Þrátt fyrir auknar tekjur dróst hagnaður eftir skatta saman milli ára, einkum vegna aukinna afskrifta og hærri fjármagnsgjalda í kjölfar kaupa á dóttur- og hlutdeildarfélögum. Á síðasta ári keypti félagið allt hlutafé í Jóhanni Ólafssyni & Co. ehf. og 70% hlut í DS Lausnum. Eignir samstæðunnar námu 21 milljarði króna í árslok 2025, samanborið við 15,6 milljarða í lok árs 2024. Skuldir námu 12,3 milljörðum í lok síðasta árs og hækkuðu um 3,6 milljarða milli ára. Á síðasta ári tók félagið 3.850 milljóna króna lán með veði í DS Lausnum sem er á gjalddaga árið 2027. Eigið fé samstæðunnar nam 8,7 milljörðum króna um síðustu áramót. Fagkaup er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur. Haraldur Líndal Pétursson er forstjóri Fagkaupa. Sagt er í skýrslu stjórnar að rekstrarniðurstaða ársins hafi verið ásættanleg þótt ekki hafi öllum rekstrarmarkmiðum verið náð. Stjórn leggur til að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð 1 milljarðs króna. Fagkaup er samstæða 10 íslenskra rekstrareininga sem sumar hverjar hafa starfað frá árinu 1921 og í upphafi voru rekin sem sjálfstæð fyrirtæki. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 24. júní.