GG ehf., móðurfélag verktakafyrirtækisins Jáverks, hagnaðist um tæplega 2,4 milljarða króna í fyrra, samanborið við 749 milljóna króna hagnað árið áður. Samstæða GG velti 16,9 milljörðum á árinu, sem er aukning um 139% milli ára. Í ársreikningi segir að stór hluti eigin íbúðaverkefna hafi farið í sölu á árinu 2025 og að talsverður hluti þeirra eigna hafi verið afhentur kaupendum á árinu. Félagið seldi íbúðir fyrir 11,6 milljarða á árinu og seld efni, vinna og þjónusta nam 5,2 milljörðum. Kostnaður við eigin verkefni samstæðunnar er eignfærður á verk í vinnslu þar til íbúð er afhent endanlegum kaupanda. Í árslok voru eignir félagsins bókfærðar á 21,1 milljarð króna, þar af voru eigin verk í vinnslu 17,5 milljarðar. Eigið fé nam 6,9 milljörðum. Alls heyra 7 dótturfélög undir samstæðu GG ehf. Að mati stjórnar er verkefnastaða félaganna í samstæðunni góð og fer árið 2026 vel af stað framkvæmdalega. Samstæðan eigi enn talsvert af tilbúnum, óseldum íbúðum sem er unnið í að selja. Áætlanir miða að því að umfang starfsemi samstæðunnar verði sambærilegt og árið 2025 en staðan á íbúðamarkaði muni hafa mikil áhrif á tekjufærslu og framlegð á árinu. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .