Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlkan komin í leitirnar Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í vikunni er komin í leitirnar. Lögregla þakkar veitta aðstoð. RÚV / Ragnar Visage NýttINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ný reglugerð um málefni barna með fjölþættan vanda gæti kostað sveitarfélögin milljarða Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga segir íslenska ríkið brjóta samkomulag við sveitarfélögin með nýrri reglugerð um ábyrgð í málefnum barna með fjölþættan vanda. Um tveir milljarðar gætu bæst við útgjöld sveitarfélaganna á næsta ári. Fyrir 9 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Frestun á einum stað hefur ekki áhrif á öðrum Sá möguleiki er fyrir hendi að leikir frestist vegna slæmra veðurskilyrða á HM í fótbolta. Nú þegar úrslitaleikirnir í riðlum fara fram hefjast þeir á sama tíma. Það er þó ljóst að ef leik er frestað vegna veðurs verður hinum leiknum ekki frestað. Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Boðar breytingar á viðveru, ráðningum og ferðalögum Borgarstjóri boðar frekari hagræðingu í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins. Þá stendur til að gera áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gjaldfrjáls Strætó Reykjavíkurbarna kominn og farinn Að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir öll reykvísk grunnskólabörn var ófjármögnuð tillaga, segir í bókun borgarstjóra. Tillagan var samþykkt skömmu fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar en hefur nú verið afturkölluð. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Nær bláa aldan hinu ómögulega? Sex leikir eru á dagskrá heimsmeistaramótsins í fótbolta í kvöld og í nótt. Fámennasta þjóð sem hefur tekið þátt á HM á enn möguleika á sæti í 32-liða úrslitum. Curaçao mætir Fílabeinsströndinni klukkan 20:00 og er leikurinn á RÚV2. Curaçao er fámennasta lið í sögu HM og er liðið kallað bláa aldan. Liðið náði risa áfanga með stigi gegn Ekvador en gæti nú farið áfram ef allt gengur upp. Þýskaland mætir Ekvador í hinum leiknum. Þjóðverjar eru öruggir með toppsætið og áfram en Ekvador á möguleika á 32-liða úrslitum. Sá leikur er á RÚV. Við fylgjumst með fyrstu leikjum dagsins í lifandi fréttavakt og birtum helstu atvik. Síðar í kvöld og í nótt ráðast úrslit í F- og D-riðlum. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Af hverju í ósköpunum er Bosnía komin áfram? Bosníumenn eru komnir áfram í 32-liða úrslit með einn bestan árangur liða í þriðja sæti. En enn á eftir að leika í nær öllum riðlum. Hvernig stendur á þessu? Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Hefja brottvísanir fanga fyrir mánaðamót Á næstu vikum verður níu erlendum föngum vísað úr landi í skjóli nýrrar, tímabundinnar, heimildar í lögum. Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir áform um fleiri brottvísanir. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Til skoðunar að bæta við neyðarnúmeri Til skoðunar er að bæta við símanúmeri í Neyðarlínuna á meðan á yfirfærslu úr 2G og 3G stendur. Það gætu verið lagalegar hindrarnir, segir sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vilja byggja upp nýtt og minna samskiptateymi í borginni Borgarstjóri segir það hafa verið erfiða ákvörðun að segja upp stórum hluta skrifstofu borgarstjóra. Ekki standi til að útvista öllum verkefnum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla naut aðstoðar sérsveitar undir Esjunni Guðmundur Atli Hlynsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í aðgerð undir Esjunni fyrir skömmu. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta. Óskað var eftir aðstoð sérsveitar. Á mynd frá vettvangi má sjá að minnsta kosti tvo lögreglubíla umkringja annan bíl. Þá eru lögreglumenn við bílinn. Mynd af vettvangi. Aðsend Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Auka reglubundið rafmagnsleysi vegna árása Úkraínuhers Reglubundið rafmagnsleysi verður aukið hjá íbúum á Krímskaga vegna árása Úkraínuhers. Rússnesk yfirvöld hafa stöðvað eldsneytissölu til almennings vegna aukinna árása. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tillaga borgarstjóra: Leggur niður teymi, ráð og tvær skrifstofur Í fundargerð borgarráðs er farið nánar út í hagræðingar sem meirihluti borgarstjórnar hefur samþykkt. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar og lýsa yfir áhyggjum af niðurskurði í tilteknum málaflokkum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Óttast að fleiri uppsagnir séu í uppsiglingu Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, óttast að meirihlutinn í borginni muni ráðast í frekari uppsagnir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður Verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis segir stjórnvöld þurfa að bregðast við auknum ójöfnuði þegar kemur að heilsu. Mikill munur sé á líðan fólks eftir fjárhag. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Í súld og sumaryl ég samdi þetta lag Þrátt fyrir talsverða súld er sumarútgáfan er enn á fullu blasti eins og heyrðist í Undiröldum vikunnar þar sem Quarashi, Spacestation og mörg fleiri buðu upp á spriklandi ferska tónlist. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sanna óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn um uppsagnir Borgarfulltrúi Vinstrisins segir heildarsýn skorta í skipulagsbreytingum í Ráðhúsi Reykjavíkur. 18 störf eru lögð niður og níu starfsmenn fluttir milli sviða. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Landbúnaður Þýðir ekkert að leggjast niður og væla Íslendingar þekkja Sigurbjörn Árna Arngrímsson einna helst í hlutverki íþróttalýsandans og skólameistarans, en færri vita að hann er bóndi líka og ræktar bæði fé og hross. Hann segir nauðsynlegt að hafa nóg að gera, annað sé ómögulegt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Gagnrýnendur ekki sannfærðir um brottvísunarstöð eftir fund Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar segir flokksmenn hafa gengið sátta frá fundi gærdagsins þar sem lög um brottvísunarstöð voru til umræðu. Fyrrverandi ritari Samfylkingarinna tekur undir en segir gagnrýnendur ekki sannfærða um brottvísunarstöð. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands Ragnhildur Helgadóttir Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Umsækjendurnir eru: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri Þriggja manna hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar og skilar ráðgefandi áliti til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Geta ekki slegið föstu hvort drónar hafi flogið yfir Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn kynnti í dag skýrslu um atvik í september þar sem lokað var fyrir umferð um flugvöllinn þar í borg vegna óþekkts flygildis yfir svæðinu. Ekki er hægt að slá því föstu að drónar hafi flogið þar yfir. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Fyrst Evrópuþjóða til að slökkva alveg á 2G og 3G Erlendir ferðamenn gætu lent í vandræðum með að ná símasambandi við komuna til landsins. Ísland er fyrsta landið í Evrópu til þess að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni Forstjóri stéttarfélagsins Sameykis staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um uppsagnir borgarinnar samkvæmt lögum um hópuppsagnir. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar var sagt upp eða fært til í starfi í dag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgarstjóri boðar frekari breytingar á næstunni Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp eða fært til í starfi. Alls stendur til að fækka starfsfólki um 40%. Uppsagnirnar hafa áhrif á 27 stöðugildi. 18 störf hafa verið lögð niður og 9 færð til á milli sviða. Borgin telur sig geta lækkað rekstrarkostnað um allt að 330 milljónir með breytingunni. Borgarstjóri segir ákvörðunina ekki tekna af léttúð. Hennar starfi fylgi erfiðar ákvarðanir. Tvær af fimm skrifstofum ráðhússins hafa verið lagðar niður, annars vegar Mannréttindaskrifstofa og hins vegar skrifstofa samskipta og viðburða. Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp, Þá voru stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra og mannréttindaráðs einnig lögð niður. Þá verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu og dregið úr ferðalögum borgarstarfsmanna. Formaður Sameykis staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um hópuppsögn borgarinnar. Borgarstjóri tilkynnti að frekari breytingar væru í farvatninu í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins. Hún boðar breytingar í tengslum við viðveru, ráðningar og ferðalög sem kynntar verða á næstunni. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björgunarsveitir aðstoða kalt og hrakið göngufólk á Suðurlandi Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í þremur útköllum vegna kaldra og blautra ferðamanna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hvað á að gera við einkennum hitaslags? Læknar segja mikilvægt að vera vakandi fyrir einkennum vegna mjög mikils hita. Samferðafólk eigi að fylgjast með einkennum hver annars og leita læknisaðstoðar sem fyrst ef einkenni eru alvarleg. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Útboð hafið fyrir framkvæmdir við fangelsið að Stóra-Hrauni Útboð vegna jarðvegsframkvæmda við nýtt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni er hafið. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Madibo í fimm leikja banni Assim Madibo, leikmaður Katar, mun sæta fimm leikja banni f