Í lokaumferð riðlakeppni HM í fótbolta 2026 fara tveir leikir fram á sama tíma. Sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að leik verði frestað vegna veðurskilyrða. Getur það verið vegna hættu á eldingu eða vegna storms, til að mynda. Ef slíkt gerist í þriðju og síðustu umferð riðlakeppninnar verður báðum leikjum ekki frestað. Sá leikur sem veðrið hefur engin áhrif á mun halda áfram og vera kláraður samkvæmt plani. Í annarri umferð í leik Frakklands og Írak var leiknum frestað um tvær klukkustundir vegna storms. Veðurfræðingar fylgjast afar grannt með gangi mála á leikvöllum. Í kvöld leika til að mynda Túnis og Holland í Kansas. Veðurfræðingar telja ekki miklar líkur á að leik verði frestað en þó er FIFA í viðbragðsstöðu vegna veðurskilyrða þar á bæ.