Heimsmeistaramót karla í fótbolta 2026 fer fram í sumar. Hér er allt sem þú þarft að vita á einum stað. Hvenær eru leikirnir? Hvar er keppt? Hvað heita lukkudýrin? Hvernig getur þú horft á efnið erlendis? Þegar nær dregur móti kynnum við sérfræðingateymi Stofunnar og hvernig útsendingum að nær. Alla leikjadagskrá mótsins má sjá neðst. Hana má alltaf nálgast á Fram undan í beinni flipanum á RÚV.is. Hvenær er mótið? Mótið hefst 11. júní og lýkur 19. júlí með úrslitaleik í New York klukkan 19:00. 32-liða úrslit byrja 28. júní. Allir leikir mótsins verða sýndir á RÚV og RÚV 2. Hvenær eru leiktímar? Fjórtán mismunandi leiktímar eru á þessu móti. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur eru í ágætis málum þar sem leikið er frá 16:00 að eftirmiðdegi fram að 04:00 um nótt. Leikirnir verða á þessu bili: Ísland er með bestu leiktíma í Evrópu. Leikið er frá klukkan 16:00 að eftirmiðdegi til klukkan 04:00 um nótt. Undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikur verða klukkan 19:00. 19:00 er algengasti leiktíminn en 18,3% leikja hefjast þá. Leikir hefjast klukkan 16:00, 17:00 um eftirmiðdag og kukkan 19:00, 20:00, 21:00, 22:00, 23:00, 23:30 og 00:00 að kvöldi til. Næturleikir hefjast klukkan 00:30, 01:00, 02:00, 03:00 og 04:00. Hvað með næturleiki? Alls eru 29 af 104 leikjum mótsins næturleikir. Eftir riðlakeppni eru fimm leikir sem hefjast að nóttu til á íslenskum tíma. Í flestum tilfellum eru það leikir á vesturströnd Mexíkó og Bandaríkjanna. Hvað er öðruvísi á þessu móti? Í þetta sinn verða 48 lið í fyrsta sinn með. Þá verða 32-liða úrslit leikin en þau hefjast 28. júní. Alls eru tólf riðlar með fjórum liðum hver. Liðin í efstu tveimur sætum hvers riðils fara áfram í útsláttarkeppni og þeirra átta liða sem eru með bestan árangur í þriðja sæti. Allir leikir mótsins verða sýndir á RÚV og RÚV2. Alls eru það 104 leikir. Það eru 9.360 mínútur af fótbolta, hið minnsta. Ef allir leikir sem geta farið í framlengingu fara í framlengingu verður boðið upp á 11.220 mínútur af fótbolta. Það eru alls 7,79 dagar. Hvar er leikið? Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Bandaríkin AT&T Stadium. Arlington (Dallas), Bandaríkin. Áhorfendur: 94.000 MetLife Stadium. East Rutherford (New York/New Jersey), Bandaríkin. Áhorfendur: 82.500 Mercedes-Benz Stadium. Atlanta, Bandaríkin. Áhorfendur: 75.000 Arrowhead Stadium. Kansas City, Bandaríkin. Áhorfendur: 73.000 NRG Stadium. Houston, Bandaríkin. Áhorfendur: 72.000 SoFi Stadium. Inglewood (Los Angeles), Bandaríkin. Áhorfendur: 70.240 Lincoln Financial Field. Fíladelfía, Bandaríkin. Áhorfendur: 69.176 Levi’s Stadium. Santa Clara (San Francisco Bay Area), Bandaríkin. Áhorfendur: 68.500 Lumen Field. Seattle, Bandaríkin. Áhorfendur: 67.000 Gillette Stadium. Foxborough (Boston), Bandaríkin. Áhorfendur: 65.878 Hard Rock Stadium. Miami Gardens (Miami), Bandaríkin. Áhorfendur: 65.326 Kanada BC Place. Vancouver, Kanada. Áhorfendur: 54.500 BMO Field. Toronto, Kanada. Áhorfendur: 45.736 Mexíkó Estadio Azteca. Mexíkóborg, Mexíkó. Áhorfendur: 83.000 Estadio BBVA. Monterrey, Mexíkó. Áhorfendur: 53.500 Estadio Akron. Guadalajara, Mexíkó. Áhorfendur: 46.232 Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kíkti á Sportrásina á Rás 2 og ræddi fjármál HM. Hvaða lið hafa unnið HM? Ár – gestgjafi – sigurvegari 1930 – Úrúgvæ – Úrúgvæ 1934 – Ítalía – Ítalía 1938 – Frakkland – Ítalía 1950 – Brasilía – Úrúgvæ 1954 – Sviss – Þýskaland (Vestur-Þýskaland) 1958 – Svíþjóð – Brasilía 1962 – Síle – Brasilía 1966 – England – England 1970 – Mexíkó – Brasilía 1974 – Þýskaland (Vestur-Þýskaland) – Þýskaland 1978 – Argentína – Argentína 1982 – Spánn – Ítalía 1986 – Mexíkó – Argentína 1990 – Ítalía – Þýskaland 1994 – Bandaríkin – Brasilía 1998 – Frakkland – Frakkland 2002 – Suður-Kórea / Japan – Brasilía 2006 – Þýskaland – Ítalía 2010 – Suður-Afríka – Spánn 2014 – Brasilía – Þýskaland 2018 – Rússland – Frakkland 2022 – Katar – Argentína Hvað með lukkudýrin? Á mótinu eru þrjú opinber lukkudýr, eitt fyrir hvert gestgjafaland: Maple the Moose — elgur sem táknar Kanada Zayu the Jaguar — jagúar sem táknar Mexíkó Clutch the Bald Eagle — skallaörn sem táknar Bandaríkin Hvað með boltann? HM 2026 boltinn heitir Trionda og er framleiddur af Adidas. Hann endurspeglar gestgjafana þrjá og ng nafnið merkir „þrjár bylgjur“. Hönnunin notar rauðan, grænan og bláan lit til að tákna löndin. Boltinn hefur fjögur spjöld, og hefur verið hannaður til að kljúfa loftið betur. Trionda er með innbyggða skynjaratækni sem hjálpar dómgæslu og VAR með gögnum. Hvaða lið eru nýliðar? Alls eru fimm nýliðar á mótinu. Við Íslendingar bölvum Kúrasaó sem stal metinu af okkur en Ísland var áður fámennasta þjóð sem hefur leikið á HM. Þar búa um 185.000 manns. Jórdanía, Úsbekistan, Kúrasaó, Grænhöfðaeyjar og Haítí eru öll með á mótinu í fyrsta sinn. Svona horfir þú á HM erlendis Íslendingar erlendis geta horft á réttindavarið efni á RÚV ef þeir hafa rafræn skilríki. Hægt er að skrá sig inn í spilara RÚV á vefnum í gegnum vafra(ruv.is/sjonvarp). Innskráningin er ekki enn orðin virk fyrir öppin og er í boði fyrir RÚV og RÚV 2 en ekki fyrir útvarp. Útvarpslýsingar frá leikjum Íslands á Rás 2 eru þó aðgengilegar um allan heim, enda ekki réttindavarið utan Íslands. Innskráningin virkar þannig að íslenskir notendur sem staddir eru erlendis og vilja sjá réttindavarið efni, beinar útsendingar eða upptökur, fá upp glugga sem segir þeim að þau geti skráð sig inn til að fá aðgang að efni sem er réttindavarið utan Íslands. Glugginn kemur aðeins upp hjá notendum sem staddir eru erlendis og aðeins upp í vafra. Með sams konar hætti er hægt að horfa á upptökur sem eru réttindavarðar, erlenda þætti, kvikmyndir og upptökur af íþróttaefni. Hægt er að skrá sig inn til að fá aðgang að upptökum af réttindavörðu efni. Glugginn kemur aðeins fyrir notendur sem staddir eru erlendis og aðeins þegar um réttindavarið efni er að ræða. Innskráningin er framkvæmd með þjónustunni „Kenni“. Þar auðkenna notendur sig með rafrænum skilríkjum.