Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.6.2026 | 19:00 Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Þórdís segir það auðséð að ef fram fari sem horfir muni íslensk tunga ekki lifa áframhaldandi skort á viðeigandi námsgögnum af. Samsett mynd/Ljósmynd/Stjórnarráðið/mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Dæmið gengur ekki upp Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ » Fleiri tengdar fréttir Ekki er til nægilegt fjármagn til þess að prenta allt nýtt námsefni út að sögn Þórdísar Jónu Sigurðardóttur, formanns Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, og því kemur það gjarnan eingöngu út á stafrænu formi. Hún segir það auðséð að ef fram fari sem horfir muni íslensk tunga ekki lifa áframhaldandi skort á viðeigandi námsgögnum af. Í viðtali við mbl.is á dögunum sagði Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla sem hyggst draga úr tölvunotkun við kennslu og snúa aftur að námsbókum, það óhentuga þróun fyrir bóklega kennslu að útgáfa námsbóka hafi að miklu leyti færst yfir á stafrænt PDF-form. Þróunin kann að valda því að ef skólar kjósa að draga úr tölvunotkun í kennslu verði torveldara að nálgast nýjustu námsgögn, sem koma oft einvörðungu út á stafrænu formi sökum langvarandi fjársveltis til námsgagnagerðar. Því gætu þeir orðið að snúa sér að gömlum, og oft á tíðum úreltum, námsgögnum. Frétt af mbl.is Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Frétt af mbl.is Námsgögn fjársvelt í áratugi „Það er sama krónutala sett í námsgögn í dag og á þeim tíma þegar umsjón með skólunum fór yfir til sveitarfélaganna, og eðlilega hefur stofnunin og fyrirrennarar hennar þurfti að bregðast við þessari miklu skerðingu sem á sér stað við námsgögnin,“ segir Þórdís í samtali við mbl.is. „Það er dýrt að prenta námsgögn, þannig að eitthvað námsefni hefur þá bara verið gefið út á stafrænu formi.“ Frétt af mbl.is Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Frétt af mbl.is Vill taka upp „skandinavíska módelið“ Íslenskan lifi áframhaldandi skort ekki af Þórdís hefur kallað eftir því að þjóðarátak verði gert í því að setja aukið fjármagn í útgáfu námsefnis, enda ærin ástæða til. „Þetta er grunnurinn að tungumálinu okkar, að menningunni okkar, að sterkri sjálfsmynd barnanna okkar og að því að læra önnur tungumál, að hjálpa þeim sem koma annars staðar frá að læra íslenskuna,“ segir hún og bætir því við að enga snillinga þurfi til þess að sjá að íslenskan muni ekki lifa áframhaldandi skort af. „Að það sé ekki til námsefni á íslensku er auðvitað bara svo alvarlegt að ég veit hreinlega ekki hvað þarf til þess að það verði sett aukið fjármagn í þennan málaflokk.“ Frétt af mbl.is Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Kennsluleiðbeiningar ekki tiltækar Fjármagnsskorturinn hefur þannig víðtækari áhrif á aðgengi kennara að vönduðu námsefni en einfaldlega þá að þróun námsgagna staðni. „Það eru alls konar viðbrögð sem koma í kerfið þegar þessi skortur verður. Við höfum ekki prentað kennsluleiðbeiningar með þeim námsgögnum sem eru til í mörg, mörg ár, og það hefur líka þau áhrif að bækurnar nýtast ekki eins vel til kennslu.“ Frétt af mbl.is Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Kennarar útbúa eigið námsefni Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar er meðal þeirra sem skorað hafa á stjórnvöld að setja í forgang að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni. „Um 70% kennara nota námsefni sem útbúið er í skólanum oft eða mjög oft,“ segir í fundargerð ráðsins frá því 22. júní, en þar er það jafnframt tekið fram að alþjóðlegar rannsóknir á starfsaðstæðum kennara bendi til þess að íslenskir kennarar verji meiri tíma í undirbúning og stjórnsýsluleg verkefni en kennarar í flestum samanburðarlöndum. „Álag á kennara er gríðarlegt, og þetta setur ábyrgðina við námsgagnagerð á kennara,“ segir Þórdís og furðar sig á því að ekki sé meiri metnaður hjá stjórnvöldum en svo að sama fjármagni sé varið til námsgagnagerðar og árið 1996, þó að verðlagshækkun upp á 284,4% hafi orðið á því tímabili. Frétt af mbl.is „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Ekki lengur hægt að segja „þetta reddast“ Þórdís segir að það sem sé fyrst og fremst undir séu börnin okkar, sem eigi meira og betra skilið en þær aðstæður sem menntakerfið býður þeim „Það er ekki lengur hægt, að segja bara ,þetta reddast'. Sá frasi á einfaldlega ekki lengur við, við erum komin svo langt yfir þann tímapunkt.“ Frétt af mbl.is Varhugaverð innleiðing í skólunum Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Dæmið gengur ekki upp Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 0:1 Misstigu sig í toppbaráttunni Stúlkan er komin í leitinar „Hefndarverk án hliðstæðu“ Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Botnfrosnar væntingar um efnahag „Til hvers að vera með áætlun?“ Þáði hærri laun en Vilhjálmur Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Fimm sóttu um embættið Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 0:1 Misstigu sig í toppbaráttunni Stúlkan er komin í leitinar „Hefndarverk án hliðstæðu“ Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Þegar þjóðréttarskuldbinding er sett jafnhliða framsali ríkisvalds Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Botnfrosnar væntingar um efnahag Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Setja á fót sérstakt teymi til að góma vasaþjófa Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Fimm sóttu um embættið Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn

Share this article