Niðurskurðaraðgerðir Reykjavíkurborgar hafa áhrif á tæplega 30 starfsmenn samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Á annan tug manns hefur verið sagt upp vegna uppstokkunar í Ráðhúsinu en auk þess hafa starfsmenn á tilteknum sviðum verið færðir til í starfi. Í dag var greint frá því að Reykjavíkurborg hefði sagt upp 10 starfsmönnum á skrifstofu samskipta og viðburða sem ákveðið hefur verið að leggja niður. Þar af var öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp. Sjá einnig Umfangsmiklar uppsagnir hjá borginni Á fundi borgarráðs var jafnframt samþykkt að leggja niður Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Nokkrum starfsmönnum hennar var sagt upp og þrír færðir til í starfi. Jafnframt stendur til að breyta eða leggja niður stefnumótunar- og þróunarteymi borgarinnar. Nýr meirihluti Sjálfsæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur boðað fækkun yfirbyggingar og millistjórnenda í borginni. Á verkefnalista meirihlutans kemur fram að stefnt væri að því að ráðast í það verkefni á fyrstu hundrað dögum frá því að hann tók við í byrun mánaðar.