Í hádeginu var greint frá því að Reykjavíkurborg hefði sagt upp 10 starfsmönnum á skrifstofu samskipta og viðburða sem ákveðið hefur verið að leggja niður. Þar af var öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp. Á fundi borgarráðs var jafnframt samþykkt að leggja niður Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Nokkrum starfsmönnum hennar var sagt upp og þrír færðir til í starfi samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins . Jafnframt stendur til að breyta eða leggja niður stefnumótunar- og þróunarteymi borgarinnar. Samkvæmt heimasíðu borgarinnar leiðir umrætt teymi samhæfingu stefnumótunar innan borgarinnar og hefur umsjón með innleiðingu og eftirfylgni á Græna planinu, lýðheilsustefnu, atvinnu- og nýsköpunarstefnu og alþjóðastefnu. Sjá einnig Borgin segir upp 10 á samskiptasviði Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins er von á tilkynningu frá borginni bráðlega. Uppsagnirnar eru umfangsmeiri en fyrstu fréttir gáfu til kynna. Nýr meirihluti Sjálfsæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur boðað fækkun yfirbyggingar og millistjórnenda í borginni. Á verkefnalista meirihlutans kemur fram að stefnt væri að því að ráðast í það verkefni á fyrstu hundrað dögum frá því að hann tók við í byrjun mánaðar. Fyrr í mánuðinum samþykkti borgarráð skipan hagræðingarhóps sem hefur það hlutverk að gera stjórnsýslu borgarinnar, bæði miðlæga og á fag- og kjarnasviðum, skilvirkari, gagnsærri og þjónustumiðaðri, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur.