Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lúmskt algengir sjúkdómar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.6.2026 | 9:38 Lúmskt algengir sjúkdómar í samfélaginu Fjólublátt klósett víða um borgina var hluti af vitundarvakningu CCU-samtakanna um þá sjúkdóma sem hér eru til umræðu, fjólubláa klósettið sem gefur til kynna að þótt umræðu um sjúkdómana fylgi umræða um hvað gerist á salerninu megi það ekki vera neitt feimnismál. Ljósmynd/CCU-samtökin Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta eru tveir sjúkdómar, þessir bólgusjúkdómar í meltingarvegi, sáraristilbólga og Crohns,“ segir Hafsteinn Óli Guðnason, sérfræðingur í almennum lyflækningum og meltingarsjúkdómum, í samtali við mbl.is en CCU-samtökin á Íslandi, hagsmunafélag fólks með Crohns-sjúkdóminn, hefur undanfarið staðið fyrir vitundarvakningu um bólgusjúkdóma í meltingarvegi. Segir Hafsteinn sjúkdómana tvo, en Crohns kallast á íslensku svæðisgarnabólga, vera lúmskt algenga í samfélaginu. „Nýjustu tölur frá Íslandi fyrir sáraristilbólgu eru 20 manns af hverjum 100.000 og fyrir Crohns sex til sjö á hverja 100.000 svo við erum að tala um í kringum hundrað manns sem greinast samanlagt á ári,“ heldur Hafsteinn áfram og segir tölurnar svipaðar fyrir Skandinavíu, um eitt prósent fólks sé með þessa sjúkdóma. Frétt af mbl.is Blóðugur reikningur á Tenerife „Ég man þó að ein rannsókn fyrir Noreg leiddi í ljós 1,6 prósent en ég held að almennt getum við talað um eitt prósent,“ segir hann. Eins og tölurnar hér að framan benda til er sáraristilbólga algengari og segir Hafsteinn þar um að ræða sár sem myndast í ristli, annaðhvort á takmörkuðu svæði eða í öllum ristlinum. „Einkenni þessa sjúkdóms eru blóðugar hægðir og niðurgangur og á því stærra svæði sem sárin eru því meiri verður niðurgangurinn og getur orðið svo slæmur að fólk fari að tærast upp, léttist um mörg kíló og verði blóðlaust,“ útskýrir Hafsteinn. Í svæsnustu tilfellum geti innlagnar verið þörf. Stíflast alveg í verstu tilfellum „Crohns getur hins vegar verið í öllu meltingarkerfinu, frá vélinda niður í endaþarm. Þetta er öðruvísi sjúkdómur þar sem hann veldur þrengingum í meltingarkerfinu. Þar sem erfitt er þá oft fyrir mat eða hægðir að berast í gegn veldur sjúkdómurinn niðurgangi og sérstaklega verkjum,“ segir hann. Líklegt sé þá að fólk þurfi í aðgerð, í svæsnustu tilfellum stíflist það alveg og geti þurft á bráðaaðgerð að halda. Hafsteinn Óli Guðnason, sérfræðingur í almennum lyflækningum og meltingarsjúkdómum, ræðir bólgusjúkdóma í meltingarvegi við mbl.is. Ljósmynd/Aðsend „Fólk á öllum aldri er að greinast en flestir þó ungir, fimmtán til 30 ára, en geta líka verið nokkurra mánaða gamlir krakkar og upp í gamalt fólk. Enginn veit nákvæmlega hvernig á Crohns stendur, ónæmiskerfið ræðst einfaldlega á meltingarkerfið, svipað eins og í skjaldkirtilssjúkdómum og sykursýki eitt þar sem ónæmiskerfið ræðst annars vegar á skjaldkirtilinn og hins vegar á brisið,“ heldur læknirinn áfram. Um sama grunnvandamál sé að ræða. Oft séu sterar gefnir en þeir séu ekki góðir til lengdar og geti fólk þá endað á líftæknilyfjum sem það fær í æð eða sprautar sig með undir húð. „Líklegra er að fólk með Crohns geti endað á líftæknilyfjum en fólk með sáraristilbólgu á aðeins fleiri möguleika. Sumir fara í aðgerð ef ekkert virkar á bólguna, um þriðjungur til helmings Crohns-sjúklinga endar í aðgerð en eitt til tíu prósent í tilfelli sáraristilbólgu. Þegar farið er í aðgerð vegna hennar er allur ristillinn tekinn og fólk getur endað með tímabundinn stóma en þegar um Crohns er að ræða er hægt að fjarlægja þann hluta sem er bólginn og setja meltingarveginn saman aftur,“ segir Hafsteinn. Erfiðara að slökkva eldinn Einn möguleikanna sem fyrir hendi eru við Crohns-sjúkdóm í endaþarmi er að fjarlægja endaþarminn og búa til nýjan endaþarm úr smágirninu, eins konar vasa eða poka. „Þótt fólk endi í aðgerð er það ekki alltaf ávísun á varanlegan stóma. Það er auðvitað hræðilega að vera með bólgur og niðurgang í mörg ár og margir eru mjög sáttir við að fá stóma. Hverju ætti fólk helst að fylgjast með í þessum efnum? „Ef fólk leyfir bólgunni að grassera lengi eru líkur á að hún verði verri og þá er erfiðara að slökkva eldinn og fólk þarf oft að leggjast inn og endar jafnvel í aðgerð. Þeir sem koma fyrr inn, þegar bólgan er ekki orðin svona slæm, er auðveldara að ráða niðurlögum hennar með léttari meðferð,“ segir Hafsteinn og segir yngra fólk gjarnan eiga erfitt með að koma í skoðun vegna blóðugra hægða – það eigi einfaldlega erfitt með að tjá sig um slíkt við heilbrigðisstarfsfólk. „Og yngra fólk greinist oftar en svo kemur annar, en lægri, toppur oft í kringum sextugt. Yngra fólkið er oft skemmtilegur sjúklingahópur og er mjög þakklátt þegar það losnar við þetta og getur haldið áfram með lífið,“ segir Hafsteinn. Hverjar eru þá batahorfurnar? Hafsteinn svarar því að fólk læknist aldrei algjörlega nema í þeim tilfellum þegar ristill er fjarlægður í heild sinni við sáraristilbólgu. „En svo lengi sem þú ert með líffæri sem geta bólgnað upp er þetta þrálátur sjúkdómur. Með því að nota lyf eða aðgerð er hægt að halda sjúkdómnum niðri en þú getur fengið kast aftur eftir mánuð, eftir fimm ár eða 50 ár eða aldrei. Það er því alltaf nauðsynlegt að vera í eftirliti. Maður veit aldrei hvenær næsta bólgukast kemur eða hvort það kemur,“ segir Hafsteinn Óli Guðnason, lyf- og meltingarsjúkdómalæknir, að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lúmskt algengir sjúkdómar Martin í úrvalsliðinu eftir meistaratitilinn Evran dýrari fyrir jaðarríki ESB Jermaine Jackson kærður fyrir nauðgun Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Botnfrosnar væntingar um efnahag Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Botnfrosnar væntingar um efnahag Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Hitinn gæti náð 18 stigum Þáði hærri laun en Vilhjálmur Ákærður fyrir ofbeldi í garð eiginkonu sinnar Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Lúmskt algengir sjúkdómar Martin í úrvalsliðinu eftir meistaratitilinn Evran dýrari fyrir jaðarríki ESB Jermaine Jackson kærður fyrir nauðgun Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir eðlilegar skýringar á töfum „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Setja á fót sérstakt teymi til að góma vasaþjófa Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Botnfrosnar væntingar um efnahag Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Hitinn gæti náð 18 stigum Þáði hærri laun en Vilhjálmur Ákærður fyrir ofbeldi í garð eiginkonu sinnar Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article