Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.4.2026 | 20:20 Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, forseti Velsældarþingsins, í Hörpu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ný skýrsla OECD um samfélagsleg og efnahagsleg áhrif ósmitbærra sjúkdóma sýnir að þeir hafa veruleg áhrif á heilsu, lífsgæði og hagkerfi aðildarríkja. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að tilfellum slíkra sjúkdóma fjölgi um 31% á næstu 25 árum eingöngu vegna öldrunar. Þetta er á meðal þess sem kom fram á Velsældarþinginu í Hörpu í dag þar sem niðurstöður skýrslunnar The Health and Economic Benefits of Tackling Non-Communicable Diseases, ásamt greiningum fyrir Ísland og öll OECD- og ESB-ríki, voru kynntar. Frétt af mbl.is Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi 230 þúsund fleiri tilfelli fram til ársins 2050 „Þegar litið er til þróunar áhættuþátta verður myndin enn alvarlegri. Þótt árangur hafi náðst á sumum sviðum, til dæmis með minni reykingum og bættum loftgæðum, hefur hann að miklu leyti gengið til baka vegna hraðrar aukningar í offitu. Í heild er því spáð að breytingar á áhættuþáttum frá árinu 2010 muni leiða til um 230 þúsund fleiri tilfella ósmitbærra sjúkdóma á ári fram til ársins 2050 innan OECD-ríkjanna,“ segir í tilkynningu. Þá valdi fjórir helstu sjúkdómarnir sem teljast ósmitbærir, krabbamein, hjarta- og æðasjúkdómar, langvinn lungnateppa og sykursýki, nærri helmingi allra ótímabærra dauðsfalla innan OECD. Einnig auki þeir líkur á geðrænum vandamálum og hafi víðtæk áhrif á samfélagið, meðal annars með því að draga úr framleiðni og auka álag á heilbrigðiskerfið. Frétt af mbl.is Boða aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi Offita stærsti áhættuþátturinn Samkvæmt skýrslunni myndi heilbrigðiskostnaður lækka um 41% ef þessum sjúkdómum yrði útrýmt og landsframleiðsla aukast að jafnaði um 3,8% á ári á tímabilinu 2026 til 2050. „Í skýrslunni kemur fram að forvarnir skili meiri árangri en meðferð þegar kemur að því að draga úr ósmitbærum sjúkdómum. Með því að einblína á helstu áhættuþætti, einkum offitu, óhollt mataræði og hreyfingarleysi, sé hægt að ná verulegum árangri á tiltölulega skömmum tíma. Þar vegur þyngst að takast á við stærsta áhættuþáttinn, sem yfirleitt er offita, en hún getur ein og sér skilað um helmingi af þeim ávinningi sem felst í að fækka tilfellum ósmitbærra sjúkdóma,“ segir í tilkynningu. „Til að ná árangri þarf samkvæmt OECD samþætta nálgun sem byggir á þremur meginstoðum: að efla fræðslu og upplýsingar til almennings, að skapa aðstæður sem auðvelda heilbrigðar ákvarðanir og að styrkja heilbrigðiskerfið þannig að það tryggi bæði árangursríkar forvarnir og meðferð.“ Frétt af mbl.is Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar Staða Íslands almennt verið betri Þegar horft er sérstaklega til Íslands í þessum efnum kemur fram að árið 2022 hafi staða Íslands verið almennt betri en á meðal annarra OECD-ríkja, þá sérstaklega er kemur að loftgæðum hér á landi sem og reykingum. Þá sýni greining að breytingar á áhættuþáttum ósmitbærra sjúkdóma hér á landi frá 2010 hafi skilað árangri en þó séu teikn á lofti um að það gæti breyst, m.a. vegna lengri lífslíkna þar sem greiningar og meðferðir séu að verða betri. Þannig gæti tilfellum fjölgað hér á landi næstu áratugi og heilbrigðisútgjöld hækkað. Aukinheldur kemur fram að á Íslandi megi rekja 47% ótímabærra dauðsfalla, fyrir 75 ára aldur, til ósmitbærra sjúkdóma og að slíkt gerist oftar í tilfellum karla. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR - Keflavík, staðan er 46:49 Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Íslendingaliðið á leið í oddaleik „Það er alltaf nóg að gera en ég finn ekki fyrir álaginu“ Bókanir til Spánar og Protúgal aukast vegna stríðsins Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Sigmundur Davíð lét ekki segjast Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Lokaðir inni um óákveðinn tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » KR - Keflavík, staðan er 46:49 Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Íslendingaliðið á leið í oddaleik „Það er alltaf nóg að gera en ég finn ekki fyrir álaginu“ Bókanir til Spánar og Protúgal aukast vegna stríðsins Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article