Innlent | mbl | 24.6.2026 | 16:05 Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Vélfag er með starfsemi sína á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Setja bókamerki Tengdar fréttir Viðskiptaþvinganir vegna innrásar Rússa „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Grunaðir um ólögmætan innflutning til Rússlands Mál Kaufmanns beint upp í Hæstarétt Stjórnarformaður Vélfags handtekinn Vélfagi veittar undanþágur » Fleiri tengdar fréttir Hæstiréttur telur það ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat banka á því hvort frysta eigi fjármuni viðskiptavina sinna. Þetta kemur fram í niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli Vélfags gegn íslenska ríkinu þar sem ekki var fallist á þá kröfu Vélfags að ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um að hafna því að aflétta frystingu fjármuna Vélfags yrði ógild. Vildi Vélfag meina að ráðherranum væri skylt að aflétta frystingunni á grundvelli ákvæðis laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða sem mælir fyrir um að ráðherra sé skylt að gera slíkt þegar staðfest hefði verið að fjármunir hefðu verið frystir hjá aðila sem bæri sama eða svipað nafn og aðili sem skráður væri á lista yfir þvingunarráðstafanir. Frétt af mbl.is „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Ekki frystir vegna ruglings Segir Hæstiréttur það óumdeilt að það hafi verið hlutverk Arion banka að meta það hvort fjármunir skuli vera frystir. Fyrrnefnt ákvæði laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða veitir að mati Hæstaréttar ráðherra aðeins heimild til að stíga inn í þegar fjármunir hafa verið frystir vegna ruglings á nöfnum. Hæstiréttur taldi hins vegar að fjármunirnir hefðu ekki verið frystir vegna ruglings heldur vegna tengsla við aðila sem er skráður á lista Evrópusambandsins yfir lögaðila sem sæta þvingunarráðstöfunum. Taldi Hæstiréttur að samkvæmt framansögðu væri utanríkisráðherra hvorki heimilt né skylt að aflétta frystingu Arion banka á fjármunum Vélfags. „Samkvæmt því sem nú hefur verið rakið var það ekki hlutverk ráðherra samkvæmt 2. mgr. 12. gr. laga nr. 68/2023 eða öðrum ákvæðum laganna að endurskoða efnislegt mat Arion banka hf. á eignar- og stjórnunartengslum milli JSC Norebo Holding og áfrýjanda,“ segir orðrétt í dómnum. Frétt af mbl.is Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Kaufmann átti ekki lögvarða hagsmuni Einnig var kveðinn upp dómur í máli Ivans Kaufmann, eiganda Vélfags, gegn íslenska ríkinu en því máli var hins vegar vísað frá. Kaufmann lét þar reyna á gildi þeirrar ákvörðunar utanríkisráðherra að synja honum um að taka sæti í stjórn Vélfags. Forsaga þeirrar ákvörðunar er sú að ráðherra veitti tímabundna undanþágu frá þvingunarráðstöfunum með því skilyrði að ekki yrðu gerðar breytingar á stjórn félagsins nema með heimild utanríkisráðuneytisins. Taldi Hæstiréttur þó að Kaufmann ætti ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr málinu. Er ástæða þess sú að ekki fékkst framlenging á undanþágunni tímabundnu og féll því skilyrðið fyrir henni niður. Taldi Hæstiréttur því ekkert standa í vegi fyrir því að Kaufmann tæki sæti í stjórn Vélfags. Tengdar fréttir Viðskiptaþvinganir vegna innrásar Rússa „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Grunaðir um ólögmætan innflutning til Rússlands Mál Kaufmanns beint upp í Hæstarétt Stjórnarformaður Vélfags handtekinn Vélfagi veittar undanþágur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lionel Messi árinu eldri í dag „Ógeðslega skemmtilegur dagur“ Framlög til varnarmála komin í 0,92% Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Mangó: Konungur ávaxtanna Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Áreitni og einelti enn útbreitt Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Hola í höggi í fjórða skipti Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Lionel Messi árinu eldri í dag „Ógeðslega skemmtilegur dagur“ Framlög til varnarmála komin í 0,92% Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Mangó: Konungur ávaxtanna Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndi kosta rúman milljarð á ári Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Ríkisstjórnin fær einkunnina -7 Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Hola í höggi í fjórða skipti Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn