Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr for­stöðumaður fyrir­tækjaráðgjafar Arion

Read Full Article →

Hjalti Már Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, sem er hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Hjalti hefur starfað við fyrirtækjaþjónustu hjá Arion í um 16 ár. Hann hefur leitt fjölmörg stór fjármögnunarverkefni og stýrt umfangsmiklum verkefnum í fyrirtækjaráðgjöf á starfsferli sínum. Hjalti Már er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistarapróf í fjármálahagfræði frá IESE á Spáni. Einar Pálmi Sigmundsson, sem undanfarið ár hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, tekur sömuleiðis við nýju hlutverki á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Hann mun leiða viðskiptastýringu gagnvart innlendum og erlendum fagfjárfestum og stefnumótun og viðskiptastjórnun þegar kemur að innviða- og fjármögnunarverkefnum á norðurslóðum. Sjá einnig Arion kannar sölu eða skráningu Blikastaða­lands Í tilkynningu segir að Arion banki hafi á undanförnum árum aukið lánveitingar til verkefna á norðurslóðum og að breytingin marki nú aukna áherslu á slík verkefni. Einar, sem hefur yfir 30 ára reynslu af fjármálamarkaði, er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management, próf í verðbréfaviðskiptum og með ACI Diploma í fjárstýringu og gjaldeyrisviðskiptum. „Hjalti Már er reynslumikill þegar kemur að þjónustu við fyrirtæki og þekkir viðskiptavini okkar vel. Einar Pálmi hefur víðtæka reynslu sem nýtist vel í nýju hlutverki. Þessar breytingar munu auka samstarf á milli lánastarfsemi okkar og fyrirtækjaráðgjafar og gera okkur betur í stakk búin til að grípa spennandi tækifæri á norðurslóðum og þar með auka umsvif okkar á svæðinu enn frekar,“ segir Hákon Hrafn Gröndal, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion.

Share this article