Fólk sem dvaldi á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lagafrumvarp um að skipa rannsóknarefndina var samþykkt nú í þinglok þann 19. júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess að brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Skipun rannsóknarnefndarinnar byggir á umræðu sem hófst í samfélaginu í febrúar eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur greindi frá Bakkakotsmálinu svokallaða. Einn af þeim sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garðinum sem er ósáttur við tímaramma rannsóknarinnar er Aron Eiríksson. Hann segist hafa fundið fyrir óánægju þegar sá að rannsóknin ætti bara að ná fram til ársins 2002. „Þegar ég sá þessa frétt. Ég varð fyrir rosalega svona ... ég fékk svona högg í... Ég fékk bara högg í hjartað sem lá bara þungt á bringunni. Ég var í útilegu þegar ég las þessa frétt. [...] Þá sá ég þetta að frumvarpið ætti bara að ná til ársins 2002,“ segir Aron í viðtali við fréttastofu. Fjallað er um þessa gagnrýni Arons og konu sem bjó á fósturheimilinu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Börn sem bjuggu á Gauksstöðum í Garði eru ósátt við að nýsamþykkt lög um rannsókn á fósturheimilum ná ekki lengra fram í tímann en til 2002. Forsætisráðherra getur víkkað rannsóknina út með sérstöku erindisbréfi. Tímasetning ofbeldis skipti ekki máli Aron Eiríksson hefur sagt reynslusögu sína af Gauksstöðum í viðtali við fréttastofu. Aron bjó á heimilinu á árunum 2014 og 2015 þegar hann var hann fjórtán til fimmtán ára gamall. Hann lýsti því sem hann kallaði andlegar og líkamlegar pyntingar þar sem hann var læstur inni í kofa, látinn sitja á stól tímunum saman og beittur annars konar harðræði. Kona um þrítugt sem bjó á fósturheimilinu sem unglingur er einnig ósátt við það að rannsóknin nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Þessi kona hefur áður komið í viðtal við Þetta helst og lýst veru sinni á Gauksstöðum. Konan vill ekki koma fram undir nafni. Hún segir við Þetta helst um gremju sína vegna þessa og af hverju hún telur að rannsóknin eigi að ná yfir lengra tímabil. „Frumvarpið er vissulega skref í rétta átt. Mér finnst samt rangt að draga línu við árið 2002. Það á ekki að skipta máli hvenær ofbeldi átti sér stað. Þolendur eiga að njóta sama réttar hvort sem brotið var framið fyrir eða eftir það ár,“ segir konan. Eigendur Gauksstaða, Jón Steinar Konráðsson og Linda Elizondo, hafa ekki viljað fréttastofu RÚV viðtöl um fósturheimilið þegar eftir því hefur verið leitað. Þetta helst hefur rætt þrisvar við Jón Steinar og beðið hann um viðtal og við vinnslu þessa þáttar var óskað eftir viðtali við Lindu. Eftir að málið komst fyrst upp sagði Jón Steinar að ekkert ofbeldi hefði verið á Gauksstöðum. Hægt að víkka rannsókn út eða gera aðra Í kynningu á lagafrumvarpinu í ræðustól Alþingis þann 18. júní sagði þingkona Samfylkingarinnar, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, að tímarammi rannsóknarinnar miðist við setningu nýrra barnaverndarlaga árið 2002. Hún kynnti frumvarpið sem nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Í fyrstu grein frumvarpsins segir orðrétt um tímaramma laganna. „Ráðherra er heimilt að setja á fót nefnd til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru á vegum ríkis og sveitarfélaga á einkaheimilum. Lög þessi taka til einkaheimila þar sem börn voru vistuð fyrir atbeina stjórnvalda samkvæmt ákvörðun, samningi við opinberan aðila eða á grundvelli opinbers leyfis á tímabilinu 27. mars 1947 til 1. júní 2002.“ Ása Berglind sagði í kynningunni á frumvarpinu að forsætisráðherra gæti ákveðið að láta rannsóknina ná lengra fram í tímann en til ársins 2002 með því að senda sérstakt erindisbréf til nefndarinnar þar að lútandi. Hún sagði líka að Alþingi gæti ákveðið að ráðast í aðra rannsókn á fósturheimilum sem nái til áranna eftir 2002.