Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Opna sig um fósturheimilið Gauksstaði: „Þarna skeit kerfið upp á bak“

Read Full Article →

„Þarna skeit kerfið upp á bak. [...] Þú ert kominn með 30 krakka sem eru öll með brotna og æsku eða brotinn bakgrunn og eigum að vera að koma inn á heimili þar sem við eigum að fá jafnvægi, við eigum að fá stuðning en fáum hann ekki. Við fáum bara meira af sama skít og við erum búin að upplifa í gegnum ævina og í gegnum æskuna okkar. Ég vil sjá viðurkenninguna, að barnavernd og Barnaverndarstofa geti séð sóma sinn í því að segja: Veistu, við gerðum skitu: Fyrirgefðu,“ segir Burkni Þór Sveinsson sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum sem unglingur á árunum 2011 til 2012. Burkni segist hafa upplifað andlegt ofbeldi á heimilinu á meðan hann bjó þar og hafa tvær konur sem einnig bjuggu á Gauksstöðum sem börn svipaða sögu að segja. Fósturheimilið Gaukstaðir hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu vikur vegna þess að Barnaverndarstofa kærði starfsemi þess til lögreglunnar árið 2019. Heimilið var starfandi frá 2009 til 2019 en engin fósturbörn voru vistuð þar eftir að lögreglurannsóknin hófst. Rúmlega 20 einstaklingar sem búið höfðu á Gauksstöðum leituðu til lögmanns með sín mál í kjölfarið. Burkni var einn af þeim. Til rannsóknar var meint brot á barnaverndarlögum og meint brot í opinberu starfi. Rannsókn lögreglunnar á Gauksstöðum var felld niður árið 2021 þar sem málið þótti ekki líklegt til sakfellingar auk þess sem einhver hinna meintu brota voru fyrnd. Facebook-færsla eiganda Gauksstaða í Garðinum í vikunni reitti nokkra af þeim sem bjuggu á fósturheimilinu sem börn og unglingar til reiði. Eigandi fósturheimilisins heitir Jón Steinar Konráðsson. Rætt er við Burkna og konurnar sem bjuggu á Gauksstöðum í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag um viðbrögð þeirra við þessari færslu og upplifun þeirra af því að búa á Gauksstöðum. Þáttinn má hlusta á hér: Börn sem bjuggu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði stíga fram eftir Facebook-færslu eigandans í vikunni og gagnrýna hana. Þau lýsa harðræði og því sem þau kalla andlegt ofbeldi á heimilinu. Rannsókn lögreglu á fósturheimilinu var felld niður. Vill ekki viðtal en segist ekki hafa neitt að fela Í Facebook-færslunni um fósturheimilið sagði Jón Steinar Konráðsson meðal annars að ekkert ofbeldi hefði tíðkast á fósturheimilinu, einungis agi, og vísaði hann gagnrýni á starfsemina til föðurhúsanna. Jón sagði jafnframt að fjárhagslegir hvatar hefðu rekið fólkið áfram í því að fara með málið til lögreglunnar og lögmanns. Orðrétt sagði Jón Steinar meðal annars: „Svo það sé alveg skýrt þá snérust ásakanir á hendur okkur um að börn hefðu ekki mátt eða hefðu þurft að gera hitt og þetta, sem á íslensku kallast agi. [...] Hverjum getur dottið í hug að á öllum þessum tíma með öll þessi börn og öll þessi samskipti að eitthvað sökótt hafi átt sér stað án þess að vera tilkynnt. [...]Það liggur ljóst fyrir að ekkert barn varð fyrir ofbeldi á okkar heimili, ef svo hefði verið, er alveg ljóst að það hefði komið fram fyrir löngu og hvað þá í öllum skýrslutökum sem börnin sátu með lögreglu og barnastofu.“ Jón Steinar segir í samtali við fréttastofu að hann vilji ekki koma í viðtal um fósturheimilið á Gauksstöðum. Hann segist hafa sagt það sem hann vilji segja í færslu sinni um málið á Facebook. Hann segist ekki hafa neitt að fela. Ósátt við að vera vænd um græðgi Kona um þrítugt sem bjó á Gauksstöðum sem barn segir að henni hafi verið misboðið út af Facebook-færslu Jóns Steinars Konráðssonar. Hún vill ekki koma fram undir nafni. Konan segir að hún hefði líklega ekki stigið fram til að segja sögu sína ef Jón Steinar hefði ekki skrifað þessa færslu. „Mér brá alveg rosalega mikið. Þetta er sár sem er verið að rífa upp mjög reglulega, því miður. Af því við fáum aldrei neinn enda á þetta. Þegar hann kemur með þennan status, þessar ásakanir sem hann er að segja um okkur, að við séum blinduð af einhverjum peningum, er bara virkilega sárt.“ Konan segir að það eina sem hafi vakið fyrir börnunum þegar þau sögðu Barnaverndarstofu frá upplifun sinni árið 2019 hafi verið að láta loka fósturheimilinu á Gauksstöðum. „Þá vorum við búin að vinna,“ segir hún og undirstrikar að þau hafi viljað koma í veg fyrir að önnur börn myndu lenda í því sama og þau. Konan vill að nú fari fram rannsókn á öllum fósturheimilum á Íslandi. „Ég vil að það séu tekin í gegn öll fósturheimili sem eru starfandi núna og þau skoðuð. Af því þetta stoppaði 2019 og það er alveg 100 prósent að það er eitthvað fósturheimili þarna núna sem er með eitthvað, eitthvað ofbeldi í gangi. [...] Þetta var bara hræðilegt,“ segir konan.

Share this article