Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

8,5 milljarða hagnaður

Read Full Article →

Hagnaður af rekstri samstæðu Samherja nam um 8,5 milljörðum króna eftir skatta og fjármagnsliði árið 2025 samanborið við 6,8 milljarða árið áður. EBITDA hagnaður nam 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. Hagnaður af rekstri samstæðunnar (EBIT) jókst um tæplega 19% milli ára og nam 7,3 milljörðum króna samanborið við 6,1 milljarðs króna hagnað árið áður. Í tilkynningu Samherja segir að aukinn rekstrarhagnaður skýrist öðru fremur af háu afurðaverði á botnfiskmörkuðum og traustum rekstri. Tekjur samstæðunnar voru 78,4 milljarðar króna og eignir í lok árs námu 131,3 milljörðum króna. Eigið fé nam 99,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 75,8%. „Ársuppgjör Samherja sýnir að grunnrekstur félagsins er traustur og fjárhagur þess er sterkur. Það gerir Samherja kleift að horfa til frekari fjárfestinga, einkum þeirra sem miða að því að auka samkeppnishæfni félagsins og þar með íslensks sjávarútvegs,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf. Hagfelldar markaðsaðstæður og jákvæðar horfur Í tilkynningu Samherja segir að árið 2025 hafi verið gott í sölu afurða erlendis og voru aðstæður á mörkuðum hagfelldar. Þetta endurspeglaðist í veltuaukningu hjá Ice Fresh Seafood ehf., sölufélagi Samherja, og var aukin eftirspurn eftir flestum fisktegundum á árinu. Þá kemur einnig fram að vaxandi eftirspurn eftir þorski hafi haldið áfram á þessu ári. Samherji fiskeldi slátraði 5.809 tonnum af óslægðum fiski á síðasta ári. Þar af slátraði félagið 3.140 tonnum af óslægðri bleikju og 2.669 tonnum af óslægðum laxi og hefur félagið aldrei framleitt jafn mikið af laxi á einu ári. Þar vegur þungt aukin framleiðslugeta á laxi vegna stækkunar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði. Þar var ný vinnsla tekin í notkun í júní á síðasta ári.

Share this article