Innlent | mbl | 21.7.2026 | 12:20 Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda Samherji ætlar að verja 100 milljónum á næstu fimm árum til uppbyggingar á úrræðum gegn fíknivanda. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Setja bókamerki Útgerðarfyrirtækið Samherji ætlar að koma á fót nýjum átakssjóði sem ætlað er að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum á meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Sjóðurinn ber heitið Samheldni og á næstu fimm árum mun Samherji leggja til 100 milljónir króna í uppbygginu á úrræðum gegn fíknivanda. Sömuleiðis er stefnt að því að fá atvinnulífið allt til liðs við verkefnið svo sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja mikilvægra átaksverkefna. Biskup Íslands verndari sjóðsins Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir í tilkynningu mikla þörf á úrræðum fyrir þá sem glíma við fíknivanda en fólk víða að úr samfélaginu mun koma til með að starfa fyrir sjóðinn, þar á meðal biskup Íslands sem verður verndari hans. Þá skipa stjórn samtakanna þau Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipars\TBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður samtakanna. Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir. „Í rekstri okkar höfum við í gegnum tíðina fundið hversu djúpstæð, hryggileg og eyðileggjandi fíknivandamál eru og reynt að bregðast við með því að leggja starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra lið þegar þau hafa lent í slíkum öngstrætum,“ er haft eftir Baldvini í tilkynningu um það hvers vegna Samherji taki nú þetta frumkvæði. „Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast. Við viljum nú gera þetta með formlegri og víðtækari hætti en við höfum gert hingað til og efna til sameiginlegs átaks til að takast hraustlega á við vandann. Við höfum góðar vonir um að við fáum breiðan almennan stuðning og öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi til þátttöku með loforðum um framlög næstu fimm árin,“ segir Baldvin. Fjölþætt þjónusta bætt Þau verkefni sem sjóðinum er ætlað að styrkja eru SÁÁ, Hlaðgerðarkot og meðferðarheimilið Krýsuvík. Þannig verður ráðist í að bæta verulega umgjörðina í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Einnig verður þjónusta við einstaklinga sem hafa misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt bætt. Reist verða smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots þar sem fólk sem lokið hefur meðferð getur flutt inn. Þá verður reist ný álma við meðferðarheimilið Krýsuvík sem fjölgar gistiplássum um 20. Opnaður hefur verið vefurinn samheldni.is en þar er að finna helstu upplýsingar um átakið og þau verkefni sem áætlað er að styrkja. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » France's position remains unclear Þyngja refsingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi Fjárfesta í Jónsbók Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda Engir stuðningsmenn frá Ísrael Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jetten neitar tali um undanþágur „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rannsókn vegna andlátsins hætt Ætti að biðjast afsökunar Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Kjörfundur verði með styttra móti Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » France's position remains unclear Þyngja refsingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi Fjárfesta í Jónsbók Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda Engir stuðningsmenn frá Ísrael Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Enginn haft samband vegna skrúfunnar Rannsókn vegna andlátsins hætt Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Kjörfundur verði með styttra móti Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá