Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum 35 flutningaskip fóru um Hormússund Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Flutningaskip á Hormússundi. Mynd úr safni. EPA / ALI HAIDER Minnst 35 flutningaskip fóru um Hormússund í gær, mánudag. Það er mesti fjöldi skipa sem farið hefur þar um síðan stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst. Fjöldinn er tæplega þriðjungur venjulegrar skipaumferðar um sundið, en að jafnaði fara þar um 120 flutningaskip á dag. Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Aukabúnaðarþing sökum þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst Boðað hefur verið til aukabúnaðarþings sökum þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst. Bændasamtökin vilja leggja grunn að upplýstri umræðu að sögn framkvæmdastjóra samtakanna. Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Hætta sértæku atvinnuátaki á Suðurnesjum Brynjólfur Þór Guðmundsson Vinnumálastofnun ætlar að hætta sértæku átaksverkefni í atvinnumálum á Suðurnesjum um næstu mánaðamót. Gripið var til átaksins í nóvember þegar atvinnuleysi fór yfir 6,5 prósent. Þá var gert ráð fyrir að það gæti staðið yfir í þrjá til fjóra mánuði en raunin var átta mánuðir. Sett var á fót sérstakt atvinnutorg, ráðningarstyrkir veittir og ráðist í önnur verkefni. Atvinnuleysi á Suðurnesjum er aftur komið undir 6,5 prósent og því ekki lengur forsendur fyrir átaksverkefninu, samkvæmt reglum sem gilda um viðbrögð við atvinnuleysi. Almenn ákvæði um vinnumarkaðsúrræði gilda á Suðurnesjum frá mánaðamótum. Horft yfir hluta Reykjanesbæjar. Mynd/Reykjanesbær Fyrir 46 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Rauð veðurviðvörun í 15 ítölskum borgum Rauð veðurviðvörun er í 15 ítölskum borgum vegna hita og veðurviðvaranir í Frakklandi ná til um 39 milljóna íbúa landsins. Þar þurfti að slökkva á kjarnaofni vegna hita í gær. Bretar og Belgar búa sig undir heita daga framundan. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL KrakkaRÚV Hvernig var Ísland í gamla daga? „Ísland var bara með bóndabæjum í næstum því átta hundruð ár. Engin þorp eða kaupstaðir eða neitt svoleiðis,“ segir Jón Páll Björnsson sagnfræðingur í nýjum útvarpsþáttum fyrir krakka á öllum aldri. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Segir Belarúsa gera Rússum kleift að gera langdrægar drónaárásir á Úkraínu Forseti Úkraínu segir Belarús gera Rússum kleift að gera drónaárásir á Úkraínu. Hann hefur gefið Belarús vikufrest til að fjarlægja samskiptabúnað. Talsmaður Kremlarstjórnar fordæmir ummælin. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Erfiðir tímar í íslenskri kvikmyndagerð: „Það er atgervisflótti núna úr greininni“ Fréttastofa ræddi við formenn stéttarfélaga í kvikmyndageiranum um stöðuna í bransanum. Þeir lýsa ýmiss konar erfiðleikum og áskorunum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Austlæg átt og blautt Austlægar áttir ráða ríkjum á landinu í dag með rigningu, en í nótt á að draga úr rigningu og lægja. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Svarar Ronaldo gagnrýnisröddum? England og Portúgal í sviðsljósinu England og Portúgal verða í sviðsljósinu þegar annarri umferð riðlakeppni HM í fótbolta lýkur í kvöld. Augu margra verða á Cristiano Ronaldo sem var mikið gagnrýndur eftir jafntefli Portúgala við Kongó í fyrstu umferð. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Jórdanía – Alsír Alsír vann Jórdaníu með tveimur mörkum gegn einu í leik liðanna í J-riðli sem fram fór í San Francisco í nótt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Barátta um jökla og jarðir: „Umfram allt vilja þeir þagga niður í okkur“ Kona sem tilheyrir samfélagi Mapuche-frumbyggja í suðurhluta Argentínu var gestur á ráðstefnu hjá Háskóla Íslands í síðustu viku. Hún lýsir baráttu frumbyggja við argentínska ríkið undir stjórn Javier Mileis. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Styttist í heimferð Jórdana Alsír vann Jórdaníu með tveimur mörkum gegn einu í leik liðanna í J-riðli sem fram fór í San Francisco í nótt. Jórdanía er fallin úr leik á HM í fótbolta með ekkert stig en á leik eftir á móti Argentínu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Breta, Þjóðverja og Ítala hafa brugðist Bandaríkjamönnum Brynja Dögg Friðriksdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP / Jacquelyn Martin Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í Hvíta húsinu í gærkvöld að evrópskir bandamenn, sérstaklega Bretar, Þjóðverjar og Ítalir, hefðu brugðist Bandaríkjunum í stríðinu í átökunum við Íran. Hann sagði að Bandaríkin hefðu lagt til miklar upphæðir til verndar Evrópu. Þessi ummæli Trumps koma skömmu fyrir fund hans og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Rutte er á leið í heimsókn til Washington og fundar með Trump á miðvikudaginn. Í næsta mánuði fer Trump á leiðtogafund NATO í Tyrklandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eyðilegging af völdum stríðsátaka metin á rúman milljarð dollara Rúmlega ellefu þúsund hús hafa verið gjöreyðilögð í stríði Ísraela og Hezbollah í Suður-Líbanon síðustu mánuði. Tjónið er metið út frá gervihnattamyndum sem teknar voru í lok apríl og bornar saman við gervihnattamyndir frá október á síðasta ári. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Noregur – Senegal Norðmenn unnu Senegala 3-2 í leik liðanna í I-riðli í New Jersey í nótt. Erling Haaland átti stórleik og skoraði tvö mörk fyrir Noreg. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Frakkland - Írak Frakkar unnu Íraka 3-0 í leik liðanna í I-riðli sem lauk í nótt. Vegna eldinga þurfti að fresta síðari hálfleik um tæpa tvo tíma. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Norðmenn réru til sigurs Norðmenn unnu Senegala 3-2 í leik liðanna í I-riðli í New Jersey í nótt. Það var líf og fjör í leiknum og sérstaklega síðari hálfleik. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eftirlitsmenn á leið til Íran Stjórnvöld í Íran hafa samþykkt að þynna út birgðir sínar af auðguðu úrani, hugsanlega undir eftirliti fulltrúa Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Varaforseti Bandaríkjanna segir þetta mikilvægt fyrsta skref í að binda enda á kjarnorkuáætlun Írana. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Frakkar unnu Írak 3-0 Frakkar unnu Íraka 3-0 í leik liðanna í I-riðli sem lauk í nótt. Vegna eldinga þurfti að fresta síðari hálfleik um tæpa tvo tíma. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vegaframkvæmdir víðs vegar í kvöld og nótt Elín Hrönn Jónsdóttir Framkvæmdir verða meðal annars við Sæbraut. RÚV / Ragnar Visage Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður vegfarendur um að sýna aðgát og tillitssemi vegna vegaframkvæmda í kvöld og nótt en framkvæmdir standa yfir á 560 metra kafla við Sæbraut til klukkan sex í fyrramálið. Greint er frá þessu á Facebook-síðu lögreglunnar. Sömuleiðis verða framkvæmdir á um 860 metra kafla á Suðurlandsvegi milli Norðlingavaðs og gatnamóta við Nesjavallaleið. Veginum verður lokað í báðar áttir og umferð beint um Hafravatnsveg. Einnig verða lokanir við Heiðmerkurveg, Hólmsá og Hólmsheiðarveg. 22. júní 2026 kl. 22:11INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Skólagjöld tekin upp fyrir nemendur utan EES Ísland verður síðasta land Norðurlanda til að taka upp skólagjöld fyrir nemendur utan EES. Háskólinn reiknar nú hversu há gjöldin verða. 22. júní 2026 kl. 22:04INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ánægja með fækkun lögregluembætta í landinu Dómsmálaráðherra er nú á ferð um landið þar sem hún hittir lögreglumenn og kynnir hugmyndir um fækkun lögregluembætta úr níu í fjögur. Lögreglustjórinn á Suðurlandi og formaður Lögreglustjórafélagsins er ánægður með áformin. 22. júní 2026 kl. 21:28INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Maðurinn sem lést í umferðarslysi austan Víkur í Mýrdal á laugardag hét Bergur Einarsson. 22. júní 2026 kl. 21:10ÍÞRÓTTIR Fótbolti Kríaði út sigur KR hafði betur, 5-3 á móti ÍA í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Skagamenn komust þó tvívegis yfir í leiknum. KR styrkti stöðu sína í 2. sæti deildarinnar með sigrinum. 22. júní 2026 kl. 21:06ÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti sigur Þórs/KA kom á Þrótti Þór/KA vann sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna í fótbolta í ár þegar liðið sigraði Þrótt, 2-0. Blikar endurheimtu toppsætið með 3-0 útisigri á ÍBV. Þá skoraði Birna Jóhannsdóttir þrennu fyrir Stjörnuna á móti Fram. 22. júní 2026 kl. 21:05INNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Stefán Haukur og Pamela eru nýir skólastjórnendur Tónlistarskóla Árnesinga Nýir skólastjórnendur hafa verið ráðnir við Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst í sumar. Það eru þau Stefán Haukur Gylfason skólastjóri og Pamela De Sensi aðstoðarskólastjóri. 22. júní 2026 kl. 20:14INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Alcoa leitar til Landsréttar og vill bætur fyrir samráð Alcoa hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar í skaðabótamáli fyrirtækisins gegn Eimskip og Samskipum. Héraðsdómur vísaði kröfunni frá þar sem kröfugerðin þótti óskýr. 22. júní 2026 kl. 19:34ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Stjórnmálafræðingur: „Ólíklegt að Burnham fái mótframboð“ Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur segir ólíklegt að Andy Burnham fái mótframboð sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Óstöðugleiki hafi verið í breskum stjórnmálum frá fjármálakreppunni 2008. 22. júní 2026 kl. 19:26ERLENDAR FRÉTTIR Kanada Þrír létust í skotárás í Montreal Þrír eru látnir eftir skotárás í Montreal í dag. Ekki liggur fyrir hvert tilefni árásarinnar var, en hún átti sér stað í gyðingahverfi. Meðal þeirra látnu er meintur árásarmaður, lögregla og íbúi á svæðinu. 22. júní 2026 kl. 19:21INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Stórfelldur utanvegaakstur: „Það þarf að taka bílana af fólkinu“ Landverðir og leiðsögumenn eru ósáttir við að ferðamenn sem ollu miklum skemmdum með utanvegaakstri um helgina fái að halda áfram að keyra um landið. Þeir vilja harðari viðurlög. 22. júní 2026 kl. 19:18ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Argentína - Austurríki Argentína vann 2-0 sigur á Austurríki í sögulegum leik þ