Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skipaumferð dróst saman um helgina

Read Full Article →

Umferð skipa um Hormússundið dróst saman um helgina eftir fjögurra daga átök milli Írans og Bandaríkjanna. Í morgun náðist samkomulag um vopnahlé en áhrif átakanna á skipaumferð voru þegar farin að sýna sig. Á vef New York Times segir að fyrir upphaf nýjustu átaka hafi skipaumferð um Hormússundið verið í hæstu hæðum síðan í byrjun mars. Samkvæmt gögnum frá Kpler sigldu 22 skip um sundið í gær, samanborið við 38 skip á laugardaginn. Um 600 skip bíða enn eftir að komast um Hormússundið, samkvæmt Alþjóðlegu siglingamálastofnuninni (IMO). Sjá einnig Vopna­hlé við Hor­mússund Mörg skipafyrirtæki höfðu siglt um svæði undir vernd bandaríska sjóhersins. Íranir höfðu hins vegar krafist þess að skipin nýttu sér írönsk landhelgissvæði og vöruðu við að önnur svæði væru óviðunandi og hættuleg. Á fimmtudaginn síðasta réðust íranskar hersveitir á skip sem sigldi um alþjóðlegt hafsvæði og brugðust Bandaríkin við með hefndarárásum daginn eftir.

Share this article