Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gallup: Tæplega 60% telja að störfum muni fækka

Read Full Article →

Þróun gervigreindar hefur verið hröð undanfarin ár og sérstaklega síðustu misseri og fáar atvinnugreinar hafa farið varhluta af henni. Samkvæmt könnun, sem Gallup gerði fyrir Frjálsa verslun, nýta 65% landsmanna sér gervigreind með einhverjum hætti. Til samanburðar mældist hlutfallið innan við þriðjungur í sambærilegri könnun fyrirtækisins fyrir tveimur árum. Sjá einnig Gallup: Um 65% Ís­lendinga notar gervi­greind Tekjur og búseta skipta máli Búseta hefur áhrif. Í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur er notkunin mest, eða 76%, en í Reykjavík er hlutfallið 60% og í öðrum sveitarfélögum á landsbyggðinni 62%. Þá kemur skýrt fram að menntun og tekjur skipta máli. Tæplega 79% háskólamenntaðra nýta gervigreind en 50% þeirra sem hafa eingöngu lokið grunnskólaprófi. Ríflega 80% þeirra sem eru með 1.750 þúsund eða hærri tekjur nota gervigreind en aðeins 39% þeirra sem eru með 550 þúsund í tekjur eða lægra. Um 76% kjósenda Viðreisnar nýta sér gervigreind, næsthæst er hlutfallið hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins eða 72%. Lægst er þetta hlutfall hjá kjósendum Samfylkingarinnar eða 61%. Daglega eða oft í viku hjá meirihluta Þeir sem nýta sér gervigreind voru spurðir hversu oft þeir nýttu sér hana. Niðurstaðan er sú að notkunin er regluleg hjá flestum. Tæplega 30% nota gervigreind daglega og 41% vikulega, eða einu til sex sinnum í viku. Um 22% nota gervigreind 1–3 sinnum í mánuði og tæplega 8% sjaldnar en mánaðarlega. Þetta þýðir að um sjö af hverjum tíu styðjast við gervigreind í hverri viku, sem er til marks um hvað tæknin er orðin almenn. Það er ekki þar með sagt að nýjabrumið sé farið því tæknin er enn spennandi og þróunin í gervigreind á miklum hraða. Könnunin sýnir að gervigreind er verkfæri sem stór hluti þjóðarinnar notar og er í daglegri notkun hjá mörgum eins og áður sagði. Sex af tíu telja að störfum fækki Afstaðan til áhrifa gervigreindar á vinnumarkaðinn er áhugaverð. Í könnun Gallup var fólk spurt hvort það telji að gervigreind muni fjölga eða fækka störfum á Íslandi á næstu tíu árum. Tæplega 58% telja að með tilkomu gervigreindar muni störfum fækka. Tæplega 34% telja að áhrifin verði engin. Ríflega 8% telja að störfum muni fjölga. Töluverður munur er á afstöðu kynjanna til þessarar spurningar en ríflega 61% kvenna telja að störfum muni fækka á næstu tíu árum vegna gervigreindar en 54% karla. Eldri svarendur eru áhyggjufyllri en þeir yngri. Um 66% þeirra sem eru 70 ára eða eldri telja að störfum muni fækka, samanborið við 51% þeirra sem eru á aldrinum 30–39 ára. Þegar spurt er hvort störfum muni fjölga eða fækka á næstu 10 árum vegna gervigreindar er skýr munur eftir fjölskyldutekjum. Þrír af hverjum fjórum í tekjulægsta hópnum (550 þúsund eða lægri tekjur) eða um 74% telur að gervigreind muni fækka störfum. Um 46% þeirra tekjuhæstu (1.750 þúsund eða hærri tekjur) eru sömu skoðunar. Um 62% fólks, sem er eingöngu með grunnskólapróf, telur að gervigreind muni fækka störfum en hjá háskólamenntuðum er hlutfallið 53%. Um 62% kjósenda Miðflokksins telur að störfum muni fækka á næstu 10 árum vegna gervigreindar og um 58% kjósenda Flokks fólksins eru á sömu skoðun. Lægsta hlutfallið er hjá kjósendum Viðreisnar en um 43% þeirra telja að störfum muni fækka. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru með hæsta hlutfallið af þeim sem telja að gervigreind muni fjölga störfum en um 17% þeirra telja að það verði reyndin. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar . Áskrifendur geta lesið könnunina í heild hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article