Innlent | mbl | 19.6.2026 | 10:33 Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ „Hann hefur örugglega gert meira á sinni allt of stuttu ævi en margir sem fá að lifa eðlilegt lífskeið, ef svo má að orði komast,“ segir móðir Jóns Breka. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Reykjavíkurmaraþon „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Breyttar hlaupaleiðir í Reykjavíkurmaraþoninu Reykjavíkurmaraþonið eignast systur í Bandaríkjunum Met slegið: Yfir 325 milljónir söfnuðust Kerfisbilun í maraþoninu: „Andskotinn“ » Fleiri tengdar fréttir Jón Breki Jónas Jónasson féll frá langt fyrir aldur fram án nokkurra skýringa þegar hann var nýorðinn 20 ára gamall. Fjölskylda og vinir Jóns Breka hafa stofnað hlaupahóp í hans nafni og ætla að hlaupa saman til styrktar Konukoti í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 22 ágúst. Konukot átti stóran stað í hjarta Jóns Breka og var hann alltaf sérstaklega stoltur af störfum móður sinnar þar. „Engin útskýring nema að svona geti bara gerst“ Á páskadag 2025 borðaði Jón Breki með fjölskyldu sinni, talaði um hvað hann væri spenntur fyrir ferð til Kaupmannahafnar sem hann var á leið í nokkrum dögum síðar og fór glaður að sofa, en vaknaði ekki aftur. „Hann varð ekki var við neitt sjálfur. Þetta gerðist bara í svefni og engin útskýring nema að svona geti bara gerst,“ segir móðir Jóns Breka, Klara Lind Jónasson. Hann hafi verið fílhraustur og fjölskyldunni verulega þungbært að fá engin svör. „Hann lét alltaf alla drauma sína rætast og lifði lífinu alltaf til fulls. Hann hefur örugglega gert meira á sinni allt of stuttu ævi en margir sem fá að lifa eðlilegt lífskeið, ef svo má að orði komast. Hann beið aldrei eftir að eitthvað myndi gerast, hann bara gerði hlutina.“ Frétt af mbl.is Jólapeysan í ár pottþétt sú ljótasta „Hann var góðkunningi Konukots“ Spurð hvers vegna Konukot hafi orðið fyrir valinu segir Klara Lind að vinur Jóns Breka, sem hafi verið honum mjög kær, hafi fyrir nokkrum mánuðum deilt því með henni að hann hefði byrjað að hlaupa eftir að Jón Breki féll frá og að hann vildi hlaupa maraþon í hans minningu til styrktar Konukoti. „Mér þótti þetta svo fallegt. Hann vissi að Jón Breki var svo stoltur af því að ég væri að vinna þarna,“ segir Klara Lind. „Jón Breki þekkti Konukot, hann var góðkunningi Konukots. Honum þótti auðvitað allt mikilvægara í lífinu en að vera með húslykla og við búum bara rétt hjá Konukoti þannig að hann var alltaf að koma þangað og fá lykla að heimilinu ef hann gat ekki skriðið inn um opna glugga eða eitthvað. Hann var mjög hugfanginn af þessum málaflokki og þótti þetta svo fallegt. Þessi vinur hans sagði mér að hann hefði ákveðið að styrkja Konukot. Mér þótti það svo fallegt og ég hugsaði: af hverju get ég ekki gert þetta fyrir drenginn minn? Ég hef aldrei hlaupið en mig langar að gera þetta.“ „Hann var gleðigjafi allra og lét öllum líða eins og þeir væru mikilvægustu einstaklingarnir í lífinu,“ segir Klara Lind. mbl.is/Eyþór Stúkan Sportbar ætlar að gera boli „Það eru svo rosalega margir sem ætla að hlaupa með okkur, og sem hafa haft samband við mig sem vilja hlaupa með okkur,“ segir Klara Lind þakklát. Vinkona Jóns Breka, Julía Guðný Sae jung, hafi búið hlaupahópinn til eftir að Klara Lind sagði henni frá hugmyndinni og nú hafi fjölskyldumeðlimir, vinir og samstarfsmenn úr Gallerí 17 bæst í hópinn, en þar starfaði Jón Breki sem samfélagsmiðlastjóri. Hann hafði djúpa ástríðu fyrir tísku og ljósmyndun og setti alla sína orku og sýn í þessi skapandi svið. „Sportbarinn Stúkan á Hverfisgötu frétti af þessu og eigandinn hafði samband og vildi endilega gera boli fyrir okkur öll,“ bætir Klara Lind við. Eigandinn, Arnar Hólm Sigmundsson, ætli einnig að hlaupa með hópnum. „Lét öllum líða eins og þeir væru mikilvægustu einstaklingarnir“ „Síðan er endalaust að safnast í hópinn. Það er fullt af fólki sem vill heiðra hann og hans minningu. Það vilja allir gera allt fyrir hann því hann gerði allt fyrir alla. Hann var ljós í lífi rosalega margra. Það eru allir að byrja að æfa sig og ætla bara að gera sitt besta,“ segir Klara Lind enn fremur. „Þetta er svona bittersweet fyrir mig. Á sama tíma og þetta er svo fallegt þá er þetta mikill sársauki. En þetta verður gert og þetta á bara eftir að vaxa og vaxa og verða fallegra og fallegra. Hann hafði svo mikil áhrif á svo marga. Hann var gleðigjafi allra og lét öllum líða eins og þeir væru mikilvægustu einstaklingarnir í lífinu.“ Tengdar fréttir Reykjavíkurmaraþon „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Breyttar hlaupaleiðir í Reykjavíkurmaraþoninu Reykjavíkurmaraþonið eignast systur í Bandaríkjunum Met slegið: Yfir 325 milljónir söfnuðust Kerfisbilun í maraþoninu: „Andskotinn“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Miðasala á HM hefst í dag Kristófer Acox og Guðrún eignuðust son Beint: Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Viðræðum Írans og Bandaríkjanna í Sviss frestað Vonast til að búið verði í Grindavík Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Mildasta veðrið sunnan- og vestanlands Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Nýjast á mbl.is » Miðasala á HM hefst í dag Kristófer Acox og Guðrún eignuðust son Beint: Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Breytt stöðumat Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Mildasta veðrið sunnan- og vestanlands Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“