Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Reykjavíkurborg leggur til úrbætur á Græna gímaldinu

  • What: Reykjavík proposes improvements for the Green Gimmal project
  • Impact: Residents near the site are affected by the development
Read Full Article →

Vöruskemman við Álfabakka 2A, hið svokallaða „Græna gímald“, hefur angrað íbúa við Árskóga í Breiðholti allt frá því ljóst varð hversu stór hún yrði. Búseti hefur tvívegis kært byggingarleyfi fyrir húsið til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og óskað eftir að leyfið verði fellt úr gildi, framkvæmdir stöðvaðar og mannvirkið fjarlægt. Í janúar á síðasta ári fól borgarstjórn innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka 2A. Er það mat IER að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu á lóðinni. Í kjölfarið voru lagðar til 12 úrbótatillögur sem borgarráð vísaði í dag til umhverfis- og skipulagssviðs. Ræða við íbúa um að bæta nærumhverfi Borgarráð samþykkti líka tillögur um að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka til að bæta nærumhverfi á uppbyggingarsvæðinu, að meta áhrif uppbyggingar á umferð ásamt að taka heildstætt utan um skipulagsmál í Suður- og Norður-Mjódd og í grennd við Íþróttafélag Reykjavíkur. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir löngu tímabært að bregðast við í þessu erfiða máli, að því er fram kemur í tilkynningu. Hún segir tillögunum ætlað að tryggja að mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Mjóddin sé þungamiðja verslunar, þjónustu og íþrótta í Breiðholti og því sé mikilvægt að þarfir íbúa séu í forgrunni þegar hugað er að framtíð svæðisins.

Share this article