- What: Borgin proposes improvements for the Green Gimmal project
- Impact: Local residents and officials involved in urban development
Innlent | mbl | 18.6.2026 | 15:26 | Uppfært 16:04 Borgin leggur til úrbætur vegna græna gímaldsins Meginniðurstaða úttektarinnar er að stjórnsýslulegir annmarkar í skipulags- og leyfisferli hafi komið fram á fleiri en einu stigi málsins yfir langt tímabil. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Óboðlegur sveigjanleiki » Fleiri tengdar fréttir Innri endurskoðun og ráðgjöf telur að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu- og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu við græna gímaldið að Álfabakka 2a og leggur til 12 úrbótatillögur sem borgarráð samþykkti í dag að vísa til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. Þetta kemur fram í tilkynningu. Enn fremur samþykkti borgarráð tillögur um að fara í formlegar viðræður til að bæta nærumhverfi á uppbyggingarsvæðinu, að meta áhrif uppbyggingar á umferð og að taka heildstætt utan um skipulagsmál í Suður- og Norður-Mjódd og á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur. Borgarstjórn fól Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka 2a á fundi sínum 7. janúar 2025. Úttektin var kynnt á fundi borgarráðs í morgun. Veikleikar í skýrleika og gæðum skipulagsskilmála Meginniðurstaða úttektarinnar er að stjórnsýslulegir annmarkar í skipulags- og leyfisferli hafi komið fram á fleiri en einu stigi málsins yfir langt tímabil. Einkum hafi verið um að ræða veikleika í skýrleika og gæðum skipulagsskilmála og skipulagsgagna, rekjanleika ákvarðanatöku og samræmingu og fagmennsku í framkvæmd skipulags-, mats- og leyfisferla. Yfirferð á regluumhverfi og framkvæmd þess bendir til þess að málsmeðferð hafi almennt byggst á gildandi lögum og reglum. Frétt af mbl.is Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Mótvægisaðgerðir gætu dregið úr áhrifum ásýndar hússins Borgarráð samþykkti að vísa 12 úrbótatillögum IER sem miða að því að styrkja skipulags-, leyfis- og stjórnsýsluferli Reykjavíkurborgar til meðferðar hjá umhverfis- og skipulagssviði. Þá hefur skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verið falin eftirfylgni með tillögunum. Borgarráð samþykkti einnig að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka Álfabakka 2a um mótvægisaðgerðir sem geta dregið úr áhrifum ásýndar hússins. Umhverfis- og skipulagssviði hefur verið falið að setja af stað umferðartalningar við Álfabakka og æfingasvæði Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) svo hægt sé að meta áhrif uppbyggingar og breytingar á umferðarfyrirkomulagi síðustu ára á nærumhverfið. Enn fremur samþykkti borgarráð að fela umhverfis- og skipulagssviði að vinna að frekari deiliskipulagsvinnu í Norður- og Suður-Mjódd, þar með talið svæði ÍR. Haft verði náið samráð við hagaðila á svæðinu. „Hugsa skipulag Mjóddarinnar í heild til framtíðar“ „Það er auðvitað löngu tímabært að bregðast við þessu erfiða máli en tillögunum er ætlað að tryggja að mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Samhliða úrbótatillögum innri endurskoðunar fylgjum við málinu eftir með tillögum sem snúa að því að hefja samtal við húseigendur um bætta ásýnd byggingarinnar, meta áhrif umferðar um svæðið og hugsa skipulag Mjóddarinnar í heild til framtíðar,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra. „Mjóddin er auðvitað þungamiðja verslunar og þjónustu fyrir Breiðholtið, þar er jafnframt kröftugt íþróttastarf og mikilvægt að framtíð svæðisins sé hugsuð heildstætt með þarfir íbúa að leiðarljósi.” Frétt af mbl.is Hildur segir meirihlutann hafa brugðist Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Óboðlegur sveigjanleiki » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Tuchel sýnilega pirraður á skipulagi FIFA Bandaríkin leggja Bólivíu lið Video: Reckless overtaking maneuver nearly causes crash Tékkland - Suður-Afríka , staðan er 1:0 Sagði hegðun bandamanna skammarlega Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Samkeppnishæfni Íslands minnkar Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Tuchel sýnilega pirraður á skipulagi FIFA Bandaríkin leggja Bólivíu lið Video: Reckless overtaking maneuver nearly causes crash Tékkland - Suður-Afríka , staðan er 1:0 Sagði hegðun bandamanna skammarlega Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Arnhildur nýr borgarlistamaður Reykjavíkur Ný lög um íslenska fánann auka söluna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó