Innlent | mbl | 18.6.2026 | 12:51 Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ming Ting Mancel í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Elínborg Una Einarsdóttir Sólveig Sigurðardóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Ekkert sem bendir til geðræns vanda Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur Aðalmeðferð í Edition-málinu heldur áfram í dag Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ » Fleiri tengdar fréttir Cathrine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sem er grunuð um að hafa myrt Cathrine í samverknaði við eiginmann sinn á Reykjavík Edition-hótelinu í júní 2025, var sennilega kyrkt með snæri áður en hún hlaut stungusárið sem varð henni að bana. Klórför voru á hálsi Cathrine sem bendir til þess að hún hafi reynt að losa sig úr snærinu. Hingað til hefur Ming Ting haldið því fram að Cathrine hafi viljað deyja. Þetta kom fram í vitnisburði réttarmeinafræðings á þriðja degi aðalmeðferðar málsins yfir Ming Ting í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Cathrine og Emeric Mancel, faðir Cathrine og eiginmaður Ming Ting, fundust látin á Edition-hótelinu að morgni 14. júní 2025. Þegar viðbragðsaðila bar að garði var Ming Ting ein eftir á lífi í herberginu með eitt stungusár á bringu. Frétt af mbl.is Ekkert sem bendir til geðræns vanda Stungan olli dauðanum Í skýrslu réttarmeinafræðingsins kom fram að Cathrine hefði sennilega látist 13. júní klukkan 10.06, hátt í sólarhring áður en viðbragðsaðilar komu að líkinu, en vikmörk eru á milli klukkan 5.36 og 14.36. Tvenn stungusár voru á bringu Cathrine en annað þeirra gekk inn í hjarta hennar og olli dauða hennar. Fleiri áverkar voru á líkinu, meðal annars húðblæðingar á hálsi og andliti sem bentu til þess að hún hefði verið kyrkt með bandi. Við vettvangsrannsókn fannst eins konar snæri í herberginu en á því var blóð sem er ekki hægt að fullyrða úr hverjum var en lífsýni var á því úr öllum þremur fjölskyldumeðlimunum. Í framburði réttarmeinafræðingsins kom fram að kyrkingin hefði sennilega hafist áður en að stungan í hjartað átti sér stað. Vilji Cathrine óljós Nokkur áhersla var lögð á þessa áverka í spurningum saksóknara og dómara í skýrslutökunni hjá réttarmeinafræðingnum. Í framburði hans kom sömuleiðis fram að klórför höfðu verið á hálsi Cathrine en réttarmeinafræðingurinn taldi að það væri til marks um að hún hefði reynt að losa sig úr kyrkingunni. Í skýrslutökunni yfir hinni grunuðu, Ming Ting, í síðustu viku kvaðst hún ekki muna eftir kyrkingu og sagðist ekki hafa framkvæmt hana. Þá hélt hún því sömuleiðis fram að Cathrine hefði látist sjálfviljug. Réttarmeinafræðingurinn sagði að reynslan sýndi að fólk sem væri í raun búið að ákveða að taka eigið líf, til dæmis með kyrkingu, reyndi sjaldnast að losa sig með þeim hætti sem klórförin á hálsi Cathrine benda til. Frétt af mbl.is „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Stungan skýrir ekki meðvitundarleysið Þá var réttarmeinafræðingurinn spurður út í stungusárið sem Ming Ting var með á brjóstkassa sínum og því velt upp hvort um hafi verið að ræða sjálfsáverka eða ekki. Réttarmeinafræðingurinn sagði að ekki væri hægt að fullyrða það en hvorki fundust hikmerki í kringum stungusárið sem myndu benda til þess að hún hefði stungið sig sjálf né varnaráverkar, t.d. á höndum, sem myndu benda til þess að hún hafi reynt að verja sig frá stungu einhvers annars. Ming Ting hefur haldið því fram að hún hafi farið milli þess að vera með og án meðvitundar á meðan hún var stödd á hótelherberginu og jafnvel verið meðvitundarlaus svo klukkustundum skipti. Í framburði réttarmeinafræðingsins kom fram að áverkarnir á Ming Ting væru ekki fullnægjandi skýringar á þessu. Skert meðvitund væri ekki dæmigerð fyrir stunguáverka sem þennan. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Ekkert sem bendir til geðræns vanda Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur Aðalmeðferð í Edition-málinu heldur áfram í dag Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Myndskeið: Frábær skemmtun í leik Englendinga Frammistaða litlu þjóðarinnar lofar góðu Hættan á dauða ungra kvenna nær engin Foxtrot-stórlax fékk lífstíðardóm Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur Bandaríkjanna við Íran birtur Samkeppnishæfni Íslands minnkar Minni skortur en í ESB Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Myndskeið: Frábær skemmtun í leik Englendinga Frammistaða litlu þjóðarinnar lofar góðu Hættan á dauða ungra kvenna nær engin Foxtrot-stórlax fékk lífstíðardóm Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minni skortur en í ESB Samningur Bandaríkjanna við Íran birtur Arnhildur nýr borgarlistamaður Reykjavíkur Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó