Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íhuguðu að kasta sér fram af brú

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.6.2026 | 11:54 | Uppfært 13:14 Íhuguðu að kasta sér fram af brú Ming Ting Mancel í héraðsdómi í morgun ásamt verjenda sínum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Birta Hannesdóttir Sólveig Sigurðardóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stakk dóttur sína í hjartað Grunur um samverknað » Fleiri tengdar fréttir Ming Ting Mancel og fjölskylda hennar íhuguðu að kasta sér fram á brú til að taka eigið líf í heimsókninni til Íslands. Það þótti þeim þó ekki ákjósanlegur kostur þar sem þau voru hér yfir sumartímann og gátu þá ekki gert það í skjóli nætur. Þetta kom fram í framburði Ming Mancel fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ming sagði að tilgangur ferðarinnar til Íslands hefði verið að skoða landið og taka eigið líf. Aðalmeðferð yfir Ming hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ming talaði á móðurmáli sínu fyrir dómi en hafði með sér dómtúlk. Hún er ákærð fyrir að bana dóttur sinni Cathrine í samverknaði við eiginmann sinn Emeric sem einnig fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðbæ Reykjavíkur í fjórtánda júní á síðasta ári. Frétt af mbl.is Stakk dóttur sína í hjartað Rétt er að vara viðkvæma við þeim lýsingum sem hér koma á eftir: Dóttirin vildi fara á sársaukalítinn hátt Í ákæru yfir Ming er hún sögð hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar Cathrine og stungið hana tvisvar í brjóstkassann. Önnur stungan gekk í hjarta Cathrine. Ming sagði að ákvörðun um að stinga Cathrine í hjartað hafa verið tekin sama kvöld og þau ákváðu að taka eigið líf. Ming sagðist vita að Cathrine hefði kosið aðra aðferð til að binda enda á líf sitt en að vera stungin í hjartað. Sagði hún dóttur sína frekar hafa kosið aðferð sem væri sársaukalítil og tæki skamman tíma. Hún sagði Cathrine þó meðvitaða um að til stæði að þau myndu taka eigið líf saman. Það höfðu þau rætt fyrir ferðina og voru komin hingað til lands í þeim tilgangi. Aðspurð sagði Ming sagði að fjölskyldan hafi velt upp nokkrum aðferðum til að taka eigið líf fyrir heimsóknina. Eins og áður segir íhuguðu þau að kasta sér fram á brú auk þess sem þau skoðuðu að verða sér úti um eitur til að innbyrða. Frétt af mbl.is Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Karl Ingi Vilbergsson er sækjandi í málinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Eiginmaðurinn ákvað hvaða aðferð var valin Ming sagði að það hefði verið í höndum Emerics að ákveða hvaða aðferð yrði valin og hann lét dóttur sína vita sama kvöld og þau létu til skarar skríða. Ming sagði dóttur sína hafa óskað eftir því að deyja fyrst. Hún vildi ekki vera ein eftir á lífi. Ming lýsti því að Emeric hefði veitt Cathrine fyrstu hnífstunguna inni á baðherbergi á hótelherberginu. Hún lýsti því að Cathrine hafi setið á stól á meðan Emeric stakk hana. Næst færðu þau dóttur sína í rúm á hótelherberginu þar sem hjónin buðu dóttur sinni svefnlyf og áfengi til að lina sársaukann. Kveinkaði sér ekki eftir fyrstu stunguna Ming sagði dóttur sína ekki hafa kveinkað sér eftir fyrstu stunguna og að hún hefði sýnt af sér hugrekki. Hún þáði svefnlyfin og áfengið. Aðspurð sagði Ming að Cathrine hefði örsjaldan neytt áfengis í gegnum ævina. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari spurði hvort tilgangurinn með því að bjóða Cathrine áfengi og lyf hefði verið að slá hana út. Svaraði Ming til að tilgangurinn hefði verið að lina sársaukann. Dómari spurði þá hvort það hafi ekki verið rætt að Cathrine myndi innbyrða svefnlyf til að láta lífið í ljósi þess að hún hafði sagst vilja deyja á sársaukalítinn hátt. Ming sagðist halda að svefnlyfin hefðu ekki verið nægilega sterk auk þess sem þau töldu slíka aðferð ekki nægilega skilvirka þó þau hafi ekki rætt þetta sem aðferð sérstaklega. Aðspurð kvaðst Ming muna lítið eftir seinni hnífstungunni. Hún sagðist muna að Cathrine hefði legið á rúminu á hótelherberginu. Hún sagðist hafa setið við hlið dóttur sinnar þegar hún var stungin öðru sinni en segir minninguna af atvikinu vera orðna óskýra. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stakk dóttur sína í hjartað Grunur um samverknað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Prinsessan er látin Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Álverðið hefur rokið upp Sendiráðið bregst við brigslunum Verðbólga á sterum frá 2023 Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article