Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samkeppnishæfni Íslands minnkar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.6.2026 | 6:35 Samkeppnishæfni Íslands minnkar Samkeppnishæfni Íslands hefur aukist töluvert í alþjóðlegu samhengi frá árinu 2010 en minnkar nú verulega milli ára í nýrri úttekt IMD. mbl.is/Ómar Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Ísland skipar nú 22. sæti í nýrri úttekt IMD-háskólans í Sviss á alþjóðlegri samkeppnishæfni og fellur um sjö sæti milli ára. Lækkunin markar skarpa breytingu frá þróun undanfarinna ára, þar sem frá árinu 2010 hefur samkeppnishæfni landsins aukist jafnt og þétt en Ísland hefur ekki mælst jafn neðarlega á listanum síðan árið 2017. Samkeppnishæfni mælist þar að auki ögn minni hér en í öðrum norrænum löndum sem þó falla öll milli ára. Þar af fellur Noregur um sex sæti, Finnland um fimm, Danmörk um tvö og Svíþjóð um eitt. Á eftir Íslandi koma svo Þýskaland og Bretland í 23. og 24. sæti. Samkeppnishæfni mælist mest í Singapúr, en Venesúela vermir síðasta sæti listans. Samdráttur á öllum sviðum Þeir meginþættir, sem lagðir eru til grundvallar í úttektinni, eru efnahagsleg frammistaða, skilvirkni hins opinbera, skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegir innviðir en samkvæmt greiningu Viðskiptaráðs Íslands á niðurstöðum úttektarinnar lækkar einkunn Íslands í öllum þessum flokkum. Mest er lækkunin í flokki efnahagslegrar frammistöðu, en þar fellur Ísland úr 52. sæti í 61. sæti, og hefur landið ekki mælst lægra á þeim mælikvarða síðan árið 2010. Besti árangur Íslands á þeim mælikvarða var árið 2016 þegar landið var í 29. sæti. Þá minnkar samkeppnishæfni Íslands m.t.t. skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegra innviða og fellur Ísland um fimm sæti í báðum flokkum og um fjögur sæti þegar kemur að skilvirkni hins opinbera. Þrátt fyrir samdrátt í ár hefur samkeppnishæfni Íslands þó aukist verulega undanfarin ár og þá sérstaklega þegar kemur að skilvirkni atvinnulífsins og hins opinbera, en síðustu 15 ár hefur Ísland hækkað um 18 sæti og 26 sæti í þessum tveimur flokkum. Að baki meginþáttunum fjórum liggja 20 undirþættir með samtals 300 undirliði og er heildareinkunn landsins fengin með vigtun þeirra. Sá undirliður sem lækkaði mest hér á landi var vinnumarkaður, og fer Ísland úr 20. í 48. sæti. Byggist lækkunin á minni samkeppnishæfni í launum sérhæfðs vinnuafls og lakara framboði á starfsþjálfun og erlendu háskólamenntuðu starfsfólki. Gengissveiflur, aðlögunarhæfni stjórnvalda og skriffinnska höfðu einnig markverð áhrif til lækkunar. Einnig vegur þungt aukið atvinnuleysi sem veldur því að Ísland fellur um 15 sæti á mælikvarðanum en staða Íslands er góð þegar horft er til langtímaatvinnuleysis og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. Ísland stendur einnig framar öðrum norrænum ríkjum þegar kemur að skilvirkni atvinnulífsins og skattastefnu en samfélagsleg umgjörð, viðskiptalöggjöf, opinber fjármál og stofnanaumgjörð eru metin samkeppnishæfari í hinum ríkjunum. Leggja fram fjórar hugmyndir Í ljósi niðurstaðna úttektarinnar leggur Viðskiptaráð fram fjórar breytingatillögur sem ráðið telur að myndu allar hafa jákvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands. Þær eru: Að auka aðhald í rekstri ríkisins og selja eignir til að lækka vaxtagreiðslur og skuldir, skera niður útgjöld til að lækka skatta á laun, hagnað og fasteignir, afnema viðskiptahöft og einfalda samkeppnisumgjörð og að lokum að liðka fyrir erlendri fjárfestingu með bættu regluverki og eftirliti. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fallegustu erfðaskrár tónlistarsögunnar Samkeppnishæfni Íslands minnkar Hvort í sína áttina eftir tíu ára hjónaband Brauðtertugerð Íslendinga hefur sjaldan verið glæsilegri Stefnt að þinglokum á morgun Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Ný lög um íslenska fánann auka söluna Ekki handrit sem skipta nokkru máli Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna Heldri bílar yfir 100 ára Héraðsvatnabrú Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Einn fær 20 milljónir Minni skortur en í ESB Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Fallegustu erfðaskrár tónlistarsögunnar Samkeppnishæfni Íslands minnkar Hvort í sína áttina eftir tíu ára hjónaband Brauðtertugerð Íslendinga hefur sjaldan verið glæsilegri Stefnt að þinglokum á morgun Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Vongóður um að viðræður þokist áfram Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Minni skortur en í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna Heldri bílar yfir 100 ára Héraðsvatnabrú Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Einn fær 20 milljónir Minni skortur en í ESB Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó

Share this article