Leikur Kólumbíu og Úsbekistan var fjörugur og spennandi. Kólumbíumenn voru óneitanlega með sterkara lið en Úsbekar leyndu á sér. Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 40. mínútu þegar Daniel Munoz skoraði fyrir Kólumbíu. Úsbekar áttu svo mjög óvænta laumu um tuttugu mínútum síðar þegar Abbosbek Fayzullaev skoraði mark Úsbeka. Luis Dias launaði þó Úsbekum lambið gráa aðeins fimm mínútum síðar. Jaminton Campaz gulltryggði Kólumbíu svo sigurinn með þriðja marki liðsins í uppbótatíma leiksins á 99. mínútu. Kólumbía mætir Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó á miðvikudaginn kl. 01:45 og verður leikurinn sýndur á RÚV. Úsbekistan á sinn næsta leik á þriðjudaginn á móti Portúgal kl. 16:45 og verður leikurinn sýndur á RÚV 2.